Afturelding - 01.04.1987, Síða 14
Við sáum
Guðað verki
Undanfarið ár hefur verið skrifað heilmikið um bænavakn-
inguna, sem virðist vera að grípa um sig í Bandaríkjunum.
Helsti talsmaður hennar heitir Larry Lea. Mjög margir söfn-
uðir hafa tekið upp morgunbœnastundir. Hafliði Kristinsson
hefur kynnt sér þessar hrœringar og er hann viðmælandi Aft-
ureldingar.
— Ég frétti af bænamóti í
Pittsburg, og ákvað að fara
ásamt konu minni og hlusta á
Larry Lea og félaga.
Okkur var hampað dálítið
vegna þess að við vorum frá ís-
landi og lengst að komin. Okkur
var boðið að koma í umræðuþátt
í kristilegri sjónvarpsstöð, ásamt
kristniboðum frá Brasilíu, sem
sögðu frá starfinu þar. Þá feng-
um við tækifæri til að kynna ís-
land.
í tuttugu ár hefur náðargjafa-
hreyfingin haldið mót í Pitts-
burg. Nú var ákveðið að fá
kennslu frá Larry Lea og sam-
starfsmönnum hans, kynnast því
sem þeir eru að gera og framtíð-
arsýn þeirra.
Dagskrá bænamótsins hófst
kl. 6 á morgnana með klukku-
stundar bænastund. Grindin að
þeirri samkomu var byggð á
bæninni Faðir vor, en þó var
engin hinna fjögurra bæna-
stunda eins. Þær sóttu um
500-700 manns. Þetta var dýr-
mæt klukkustund sem leið mjög
hratt.
Sá sem leiddi þessar stundir
heitir B.J. Willhite. Hann er sá
sem hafði mest áhrif á Larry Lea
og hvatti hann til aukinna bæna.
Þessi maður hefur iðkað morg-
unbænir í 25 ár. Hann er nú einn
af aðstoðarforstöðumönnum í
Church on the Rock í Texas.
Biblíukennsla hófst kl. 9 og
stóð fram eftir degi. Leitast var
við að svara ýmsum spurningum
varðandi bænir og bænasvör.
Kennslan var mjög vel grund-
völluð á orði Guðs og reynslu
þessa manns, sem hafði í 25 ár
fundið það sem aðalþjónustu
sína að biðja. Willhite gerði
bænina að verkfæri sem allir
gátu notað. Hann víkkaði sjón-
deildarhring okkar og kenndi
okkur að nota þá möguleika sem
bænin býður upp á. Hann beindi
athyglinni að þætti Guðs í bæn-
inni og bænasvarinu og skýrði
þátteinstaklingsins.
Hingað til hefur oft verið
kennt að mennimir hafi allt að
segja með því að stíga fram í trú
og framkvæma, og svo skyldi
Guð bara standa við loforð sín.
Willhite lítur öðrum augum á
málið. Guð gefur okkur trúna,
en samt sem áður erum við ekki
alltaf fullviss. Það er mjög mikil-
vægt að trúa í hjarta okkar að
Guð svari bæn, þó svo að hugur-
inn sé ekki alltaf með á nótun-
um. E.t.v. efumst við, eða okkur
hættir til að einblína á erfiðar
kringumstæður. En efi þarf ekki
alltaf að vera neikvæður. Það
sem við þurfum að gera er að
Hafiiði Kristinsson.
leita vilja Guðs. Það er mjög
mikilvægt.
Oft sjáum við ekki bænasvör-
in. En þegar upp er staðið eru
svörin hluti af heildarmynd,
samhangandi við eitthvað annað
sem gerist í lífi okkar. Stundum
koma svörin ekki strax, heldur
verða þau að bíða til þess að geta
fallið inn í heildarmyndina, sem
Guð vill skapa. En alltaf komum
við aftur að því að mikilvægast
af öllu er að leita vilja Guðs.
Hver dagur endaði með stórri
samkomu kl. 19 og þar talaði
Larry Lea og lagði út frá hinum
ýmsu bænum í Faðir vorinu.
Aðsóknin jókst eftir því sem á
daginn leið. Biblíulestrana sóttu
1000-1500 manns, og kvöldsam-
komurnar 2500-3500 manns.
Samkomurnar voru mjög
þrungnar af nærveru Guðs. I
byrjun var mikill söngur og lof-
gjörð og síðan prédikaði Larry
Lea. Við fundum að út um allan
sal var margt að gerast. Allt í
kringum okkur sáum við
hvemig Guð mætti fólki.
Eitt atvik er okkur sérlega