Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Blaðsíða 82
78
félaga annarsvegar og hinsvegar það, sem sameinar
þau í kristið bræðralag. Kom það í ljós, eins og
svo oft áður, að kirkjan er eitt í trúnni á Drott-
in Jesúm Krist. Sundrungin var játuð sem and-
stæð vilja Krists. Hvatt var til bæna um einingu.
Frá félaginu.
Öllum meðlimum K. B. F. ætti að vera það ijóst,
hvílik þörf er á góðum kristilegum bókum, Sú þjóð,
sem á að »þroskast á Guðsríkis braut«, þarf sífaldrai
og aukinnar fræðslu og hva.tningar. 1 ár gefur
K. B. F. út bók, sem ætti að vera kærkomin hverj-
um kristnum manni. Pað er bók próf. dr. O. Hallesby,
»Frá heimi bænarinnar«. Áreiðanlega, verður sú bók
til mikilla nytja hverjum þeim, sem les hana meó
opnum huga og einlægu hjarta. Hinar bækurnar
tvær, sagan og árbókin, veita fræðslu um kristi-
iegt líf í fæðingu þess og framrás. Pær eiga, því
erindi bæði til trúaðra mannai og annara. Pessvegna
ætti oss öllum að vera; um það hugað, að bækurn-
ar nái útbreiðslu meðal þjóðair vorrar.
Kæru styrktarfélagai*, gjörið eitthvað fyrir K. B,
F. Einn nýr styrktarfélagi er nýr sigur. Hann fær
bækurnar og styrkir jafnframt starf félagsins með
andvirði þeirra. Sendið nöfn nýri-a, félaga til K.
B. F,, Box 12, Rvík.
Að lokum eru félagsmenn beðnir afsökunar á
þeim drætti, sem orðið hefur á útkomu bókanna.