Fróði - 01.02.1912, Page 2

Fróði - 01.02.1912, Page 2
244 FRÓÐI Stjórnvísin frá Rómverjum, Skáldspekin frá germönskum þjó8- um og Samkvæmis-salurinn frá Frökkum, eru nokkrir höfuö- þoettir vorrar nútíöar siðmenningar. Um tíma á Frakklandi mátti segja að alt þjóðlífiö snerist utan um hina ýmsu samkvæmissali í stórborgum landsins. Náöu þeir þá þeirri fullkomnun er þeir höföu aldrei fyrri boriö meöal nokkurrar þjóöar, enda máttu heita miöstöö allrar menningar og siöfágunar hjá þjóöinni. Kom þá í ljós hvílíkt afl til gagns og ógagns samkvæmislífiö hefir í sér fólgiö, og þó er samkvæmis- lífið sjálft ekkert annað en brot, — smá brot — manns æfanna mörgu er viröast meöal ófélagslyndra manna lítils virði. Þaö byggir eingöngu á hjástundunum frá hversdags störfum, tóm- stundunum, eyktúnum og augnablikunum, er skyldu verkin leyfa, manna og kvenna, og því acf komiS sé saman. Viö þaö að koma saman myndast nýtt umhverfi, hugsanin örfast, sjónin fyrir mannlegum kostum, fágun og prýöi, skírist. Sálarlífiö sjálft fœr örvun, og margt þaö kemur í ljós — er hugsað og sagt— oft og tíðum ógleymanlega vel sagt, er annars œtti ekkr- ert upphaf, eöa yrði eilíflega í myrkrunum huliö. Samkvæmislífiö á því sína köllun, sitt skylduverk aö vinna í þarfir siðmenningarinnar. Efsvomættiað orði kveða, erþaöekki eingöngu viökynningar stofnun manna á meðal, þó það sé þaö fyrst og fremst, heldur líka huganum til hvíldar eftir verkaslit viö almenn störf, andanum til örvunar og hugsjónaríki mannsins til hjálpar. Og í þarfir þessarar kollunar notar það tímanm sem er til afgangs. Það er í fullu samrœmi við hina aðra nyt- semdar tilhögun tilverunnar, að ekkert þarf aö ganga til ónýtis; né veröa aö engu. Allra síst hluti mannsæfanna, svo ekkr skilji þær eftir eitthvað í þjóðlífinu, þó í heildardjúpi þjóö- lífsins renni það saman í eitt og einum veröi ekki helgaö þetta og öðrum hitt. Eitt með öðru, eigum vér samkvæmislífinu aö þakka alla háttprýði, persónu-fágun, fegurö í búningi og kurteisi,. og er þaö alt ekki svo lítiö lyfti afl mönnunum, yfir dýrin og hina ytri tilveru. Spegillinn, kamburinn, sápan, snýtuklútur- inn, eru nokkur dœmi uppfundninga samkvœmislífsins. “Salóninn” franski færði þjóðunum heim sanninn um þetta,.

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.