Fróði - 01.02.1912, Síða 7

Fróði - 01.02.1912, Síða 7
FRÓÐI 249 Það fyrsta sera áðallega auðkennir ‘ Salóninn’’ á Frakklandi •er það, að hann er fyrst og síðast undir formensku og stjórn frakk- neskra kvenna. Hann er samkvæmislífið, dregið undir heimilis þak stórmenna og ríkiskvenna Honum er stjórnað, sett takmörk ■og veitt hefð, af forstöðukonum, er húsum eiga að ráða, Oftast er hann í sambandi annaðhvort við aðalsfólk, er svo hefir húsum háttað og svo er efnum búið. að það getur veitt slíka viðtöku, eða þá heimili, er nafnfræg eru fyrir þekkingu, kurteisi, menningu eða fagrar listir. í stöku tilfellum, einsog um daga Hlöðveranna, 14 ok 15, halda vildármeyjar konungs uppi boðsölum, með tilhjálp hans konunglegu hátignar, en um það ætla ög ekki að ræða. En þess má þó geta að það helsta aðdráttar afl að þeiin boðsölum var það, að komast í kynni við konung og annað hirðfólk er þar voru dag- legir gestir. Þótti það cinkum efnilegt fátækum listamönnum er vinna þurftu sig til meta, og komast hið fyrsta á framfæri. Það furðulegasta við samkvæmissalinn er sá fíngerði og fágaði andi sem þar ríkir, en þó um leið er þar alt óþvingað, alfrjálst, jafnvel vilt, ótamið. Þar nær hugmyndaríkið sínu æðsta veldi. Þar kemur hver til dyranna eins og hann er klæddur. Þar er innri maðurinn opin, bók sem öllum er lesin, þar er tengst vináttu heilt og ómengað- Þar erskifst á skoðunum, yfirvegaðar lífsskoðanir fornar og nýjar. Þar eru allar andans myndir sýndar, er hver á til, fram að bera, og færðar fram í glaðtijart dagsljósið, innan óhultra sala, livort sem eftir vanans hefð. þær þykja fagrar eða þær þykja ljótar, sannar eða ósannar. Þar er fengist við hinar ýmsu mannlítsgátur og þrauta-spurningar með alvörugefni, djúpri íhugun og heimspeki- legum athugunum. Þar eru og rýndar ýmsar stefnur oft með því naprasta háði og hnífilyrðum. Heppni í svöruiu 0g innskotum og athugunuin, fellur þar í frjósaman akur og hefir átt öfiugan þátt í að auka smekkvisi fyrir látlausum stíl, viðeigandi lýsingum og hugæu máli moðal þjóðarinnar. Eins og það hefir líka auðvirt lilægilegan þótta í rithætti, eða yflrlæti og tildur, sem þó oft hjá fjölda ómentaðra manna, er lítið hugsa. gildir í stað mikils lærdóms og speki. Yfir og á bak við þetta samkva'.mislíf hvíldi oft sálarleg full- •næging, nautn, öryggi og mjúklát, fíngerf lífsgleði, Allir fundu til þess að þeir voru lifandi og þeim leið betur. Og er það vafalaus konu höndin er þeim áhrifum veldur, er röðisniði, ytra fyrirkomulagit

x

Fróði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.