Fróði - 01.02.1912, Síða 9

Fróði - 01.02.1912, Síða 9
FKÓÐI 251 Samkvæmisstofurnar eru þá, nokkurskonar peningaslátta, þar sem hinn falski og svikni gangeyri mannlegra réttinda, þekkingar og skoðana, er heimtur inn, og önnur ný mint slegin. úr ósviknunv málmi, þeirri eðlilegu röttarkröfu tivers einasta manns að leita gæfunnar, lifa frjáls, hugsa óhindrað. “Það er margfalt nauðsyn- legra að útrýma eymdinni heldur en að margfalda fátækrahælin", sagði Diderot. Það var ein af mörgum nýjum hugsunum er voru að koma í ijós, í samræðum manna á meðal. I hinu fræga ritverki, uin franska rithöfundinn og heimspek- inginn Diderot, eftir John Morley, enska rithöfundinn góðkunna. er iýst þessum samkvæmissöium á 18. öldinni, og tilfæri eg hér nokkur dæmi. Aðal vinir Diderots meðal aðals manna voru greifa- lijónin liolbach. A sumarbústað þeirra hjá Grandval eyddi hann vanalegast rúraum 6 vikum á hverju surnri eftir árið 175,9. . Þar safnaðist og saman margt stórmenni, skáld, rithöfundar og lista- menn er koma mjög ásíðan við menningarsögu 18. aldar. Greifafrúin var mjög eftirlát við gesti sína 0g leyfði hverjum að fylgja þeim rismálum er honum leist. Diderot fer á fætur stundum ld. tí eða þá ekki fyrr en kl. 8, og situr svo við lestur og skriftir til kl. 1: Sama var í samkvæmissalnum, þar var engum sérstökum hættum fylgt. Fólk ræddi og talaðist við um alt. Hina dýpstu heimspeki, hversdagslífið og hinar ótæmandi og ávalt vekj- andi, mörgu hliðar ástalífsins. Málfæri var ekki ávalt hið dulasta rósaskrúð. En til þess var ekki fundið, þvi það var álitið að þau mál er karlar 0g konur láta sig ávalt mestu skifta, mættu skoðast og ræðast sem hver öntiur. Enda eru þau oft eins rnjög sálar og lundarfars lýsing, skoðanir, hvers og eins í þ?itn efnurn, einsog líkamleg eðlisiýsing. Það var rætt um sögu, um stjórnmál, um efnaffæði, um eðlisfræði, um siðfræði, þess á milli spilað Píquet eða gengið til kveidverðar. Á daginn, eftir miðdagsverð, er jafnan var ríkulega framborinn og þá ötið og drukkið af gestum og hús. bændum jafnvel meir en heilsan leyfði, var mikið verið útivið að leikjum eða á gangi, í Ilolbachs “Salóninum:’ voru tíðir gestir menn einsog Grimm, cr síðar varð frægur meðal Þjóðverja “franskastur allra Þjóðverja”. Galiani ábóti, einhver orðfiinasti maður þeirra tima, en djúpvitur og dæmdi manna best um ritsmíöar og stefnur þeirra tíma. Holbach greifi, er sjálfur var ailur í náttúru vísindum, Marmontel öfga og

x

Fróði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.