Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1956, Blaðsíða 8

Muninn - 01.12.1956, Blaðsíða 8
8 MUNINN VIÐ KAUPVANGSTORG Þeir eru fáir, sem vita aí litla glugganum, sem snýr út að torginu, og þeir eru enn þá færri, sem hafa tekið eftir ungu stúlkunni, sem situr við gjuggann. A hverju kvöldi sit- ur hún þar og horfir á umferðina þögulum augum. Hún er orðin okkur nákunnug, eft- ir að hafa séð okkur ganga daglega um torg- ið. Og án efa skilur hún sál torgsins. Hún hefur horft á bílana, sem þ jóta um það, hún hefur séð árekstra og slasaða menn borna inn í sjúkrabílana, og hún hefur séð menn ganga um torgið með valdsmannssvip, eins og þeir ættu allan lieiminn, og hún hefur séð auðmjúkan blaðasalann bjóða blöð sín til kaups. Það var fyrir tveim árum, að mér varð af tilviljun litið upp í gluggann henn- ar í fyrsta sinn, og síðan hef ég litið upp í hann í hvert sinn, er ég hef gengið um torg- ið. Þessi fagra stúlka hefur valdið mér mikl- um heilabrotum, og mig hefur oft langað til að spyrja einhvern um hana í von um, að hann gæti sagt mér eitthvað, en ég hef aldr- ei komið mér að því. Og oft hef ég spurt sjálfan mig: „Hver er þessi unga og fagra stúlka og hvers vegna situr hún alltaf við gluggann, í staðinn fyrir að skemmta sér eins og jafnöldrur hennar?“ Það var í kvöld, að ég fékk að heyra sögu hennar, og hún er mér svo rík í huga, að mér finnst ég verði að skrifa liana, ekki til þess að birta, heldur til þess að geyma, og leyfa kannske góðum vini mínum að lesa eftir mörg ár. í kvöld gekk ég sem oftar niður kirkju- tröppurnar. Ég tók eftir horuðum, ungum manni, sem stóð neðan undir þeirn, og ég sá, að hann mændi döprum augum upp í gluggann til stúlkunnar. Hann var fátæk- lega til fara. Ógreitt hárið slútti fram á hátt ennið. Hann var í ljósum sumarfrakka, þó að kominn væri vetur. Ég hugsaði með mér, að þarna væri þá tækifærið komið til þess að grennslast eftir sögu liennar. Ég ávarpaði manninn og bauð honum sígarettu. Ég kveikti í. Síðan reyndi ég að tala við hann, en það gekk stirðlega í fyrstu. Við töluð- um um veðrið og aðra fáfengilega hluti, en að lokum spurði ég hann, hvort hann vildi ekki setjast með mér inn á K.E.A. Hann játti því. Síðan gengurn við inn. Við feng- um okkur borð og pöntuðum kaffi. Ég dró „mænuna" upp úr vasanum og hellti út í hjá okkur. Við drukkum góða stund. Sam- ræðurnar urðu fjörugri. Að síðustu herti ég upp hugann og sagði: „Þú hefur séð ungu stúlkuna við gluggann ,er það ekki?‘ Ég sá að honum brá, og einkennilegar viprur mynduðust við munn hans. En ég lét það ekki fá á mig og hélt áfram: „Ég hef hugsað mikið um þessa stúlku upp á síðkastið, og mig hefur langað til þess að vita, hver ltún er.“ „Já,“ sagði hann, „ég þekki stúlkuna, vinur minn.“ Hann virtist vera farinn að finna svolítið á sér. Hann hélt áfram: „Ég er jafnaldri hennar. Við gengum saman í skólann á mOrgnana og úr honum. Ég kom aldrei of seint. Svo fór hún að koma heim til mín. Við töluðum mikið saman, 02: við skemmtum okkur. Þannig liðu fjögur ár. Við tókum gagnfræðapróf. Um sumarið vorum við saman, og ég fann, að hún elsk- aði mig. Um haustið fór ég í Iðnskólann. Svo var það eitt kvöld, að hún kom til mín og sagði mér, að hún væri að fara suður til Reykjavíkur til þess að vinna. Ég tók það mjög nærri mér, og það kvöld tók ég hana í fyrsta sinn í faðminn og sagði henni, að ég elskaði hana. — Hún fór suður. Við skrif- uðumst á í rúmt ár, en síðan hættu bréfin að koma. Ég beið milli vonar og ótta, og svo kom fréttin. Hún hafði lent í bílslysi. Ég fór suður undir eins næsta dag. Þegar suður

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.