Muninn

Árgangur

Muninn - 01.05.1962, Síða 3

Muninn - 01.05.1962, Síða 3
B L A Ð M A K U R E Y R I m u n i n n ENNTASKÓLANS A „ÞÁ FÆR ÍSLANDS UNGA SAGA..." Á undanförnum áratugum lrefur þróun innanlandsmála hérlendis leitt til þess, að vald höfuðborgarinnar, Reykjavíkur, í mál- efnum þjóðarinnar hefur sífellt aukizt á kostnað annarra landshluta. Þetta hlýtur að kallast eðlilegt, þegar tekið er tillit til þess, að á þessum sama tírna hefur öll hin öra fólksfjölgun í landinu komið á Reykjavík og nági'enni. Nú er svo komið, að í Reykja- \ ík, Hafnarfirði og Kópavogi hýr helming- ur þjóðarinnar, og ef rás þróunarinnar breytist ekki í bili, mun eftir nokkra ára- tugi verða svo kornið, að 80—90% þjóðar- innar búi á þessu tiltölulega mjög litla svæði. Nú spyrja lesendurnir eflaust: Hvað kem- ur okkur, nemendum í Menntaskólanum á Akureyri, þetta við? Því er fljótsvarað. Vald Reykjavíkur í þjóðmálunum er þegar orð- ið mjög úr hófi mikið, og það er á engan hátt raunhæft að láta það aukast enn. Okk- ar bíður það hlutverk, þegar við förum að hafa áhrif á landsmálin, að spyrna við fót- um og stöðva þessa óheillavænlegu þróun. En til þess að lækna meinið þarf að finna undirrót þess og upphaf, fyrr er gagnslaust að hefja lækninguna. Hvers vegna er Reykjavík orðin svona mannmörg og vold- ug? Við íslendingar erum ekki margir að tölu til. Samt sem áður erum við at öllurn lífs og sálar kröftum að burðast við að halda uppi eigin menningu og siðum, svo og sjáifstæði. Um þetta er að sjálfsogðu gott eitt að segja, en þó fylgir hér nokkur böggulf skammrifi. Til þess að halda uppi algerfega sjálfstæðri menningu þarf að liafa margvísiegar mið- stöðvar á hinum ýmsu sviðum menningar og tækni. Þessar miðstöðvar, en til þeirra teljast æðri skólar, söfn, vísinda- og rann- sóknastofnanir og ýmislegt fleii'a, rnynda í sameiningu í vissu tilliti sjálfan miðdepil þjóðlífsíns, og um þennan miðdepil snýst miklu fleira en í fljótu bragði verður upp talið. Ef eðlilegt jafnvægi í menningarþjóð- félaginu ekki á að raskast, verður að dreifa þessum menningarmiðstöðvum unr landið, og í öðrum og fjölmennari löndum hefur það víðá tekizt með hinum mestu ágæturn. En þegar þjóðin er svo fámenn sem á sér stað lijá okkur, skapast ekki nægilegt svigrúm til slíkrar dreifingar, einfaldlega vegna mann- fæðar, og allar menningar- og stjórnarmið- stöðvar ríkisins flytjast á einn og sama stað, og er þá ekki við öðru að búast en fólkið þyrpist þangað, enda sjálfgefið, að þar muni á flestan hátt einna minnst fyrir líf- inu að hafa. Þegar ástand það, sem nú hefur verið lýst, tók að skapast hér, var íslenzka þjóðin all- miklu fámennari en hún er nú. Aðstæðurn- ar hafa hins vegar breytzt með mikilli rnann- fjölgun, og virðist ekki ósennilegt, að nú sé að skapast á grundvelii hennar aðstaða til muninn 75

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.