Muninn - 01.05.1962, Blaðsíða 9
RÆII VIÐ RÖGNVALD HANNESSON
Eins . og kunnugt er, \ar Rögnvaldur
Elannesson nýlega kjörinn ritstjóri Munins
fyrir næsta skóiaár, og óskar fráfarandi rit-
nefnd honum alls velfarnaðar í starfinu.
Af þessu tilefni fór tíðindamaður blaðs-
ins á fund hans.
— Má ég ekki taka við þig viðtal fyrir
blaðið, Rögnvaldur?
— Jú, jú, fyrst það er fyrir blaðið, en ég
er nú að sökkva mér niður í hið göfuga
tungumál frönsku, svo að það má ekki vera
of langt.
— Þú ert nýkominn frá Ameríku, er mér
tjáð.
— Já, svo er mér líka tjáð. Ég kom þaðan
28. marz, en fór þangað skömmu fyrir jól.
Ferðin var verðlaun í ritgerðasamkeppni
stórblaðsins New York Herald Tribune.
— Er mikil þátttaka í þeirri samkeppni?
— Við vorum þarna frá 37 löndum, og
var skipt niður í nokkra hópa. Þátttaka hér
á landi var heldur dræm, að þvi er ég bezt
veit, og ég vil benda mönnum á, að þarna
er ágætt tækifæri til þess að sjá sig um í
heiminum.
— Og itvar dvaldist þú í Bandaríkjunum?
— Aðallega í New York. Ég bjó þar á
þrem heimilum, fyrst hjá gyðingapresti, og
sótti ég mér andlegan styrk í hof hans. Síð-
an dvaldist ég hjá kaupsýslumanni einum,
sem liugsaði mestmegnis í dollurum. A
heimili hans sá ég aðeins eina bé>k, alfræði-
orðabók, sem liann hafði fengið að láni.
Hins vegar skrapp liann eitt sinn til Ber-
Gyðingi, en sá var trúlaus, lögfræðingur,
sem hafði á sínum tíma staðið í málaþrasi
gegn McCarthy og hinni óamerísku nefnd
ltans.
— Þú hefur ekki lent í klónum á þeirri
nefnd?
— Nei, það er eitthvað farið að draga af
henni, því að það hafði engin eftirköst, þótt
ég talaði harla opinskátt á stundum, t. d.
í samræðum eins hópsins, sem voru fluttar
í sjónvarpinu. Ég sagði þar, að íslendingar
væru ekkert hræddir við sósíalisma og
mundu koma lionum á, að svo miklu leyti
sem þeir teldu borga sig. Það eru ýmsir í
Ameríku haldnir móðursýkishræðslu við
kommúnismann, en margir \ ilja líka ræða
þau mál skynsamlega og komast að niður-
stöðu.
— Vel á minnzt, sjónvarpið, hefur álit þitt
á því breytzt nokkuð frá því á málfundin-
um fyrir jól?
— Síður en svo. Þar sem hin „frjálsa sam-
keppni“ augiýsenda ræður að mestu leyti
sjónvarpsefninu, fer það aldrei upp fyrir
meðallag að gæðum. Þó er hver stöð skyld
að flytja visst magn af góðu efni, en það er
yfirleitt á morgnana, þegar enginn hefnr
tíma til að horfa á það.
— Þú hefur ferðazt eitthvað um?
— Við fórum til Washington og ræddum
lítið eitt við Kennedy á tröppum Hvíta
hússins. Hann sagðist vilja vinsamleg sam-
skipti við allar þjóðir, og kem ég því hér
með á framfæri. Svo fórnm við í Samein-
uðu þjóðirnar og hlustuðum á umræður.
Þá var verið að greiða atkvæði um Angóla-
málið, og voru allir mættir netna Portúgal-
ar og Islendingar. Dr. Ralph Bunche liélt
fyrir okkur erindi um S. þ., mjög fróðlegt.
Einnig fórum við til Suðurríkjanna.
Rögnvaldur Hannesson.
muninn 81