Muninn - 01.03.1965, Side 3
B L A Ð
AKUREYRI
m
M E N
u n i n n
NTASKÓLANS
Á
MARZ MCMLXV . 37. ÁR . 3. TBL.
FORSPIILL
Saga mannsins hér á jörðu er bæði löng og skömm, allt eftir því við hvað
er miðað. Á umbrotatímum hefur sagan verið löng. Miklir atburðir verða
oft meiri í minningunni en þeir voru á sínum tíma.
Hin stöðuga endurnýjun lífsins er stórfenglegasta kraftaverkið. Það er
eilíf dögun og kvöldroði sólarlags. Nótt og dagur. Lífið er stærsta eign okk-
ar. Hvernig við höfum eignast það, vitum við ekki. Við, sem teljum okkur
höfuðpaurana á þessari litlu jörð, gróðursetjum verk okkar inn í söguna,
afhendum niðjunum gjörðir okkar. Þetta er ósjálfrátt hlutverk okkar.
Andleg stórvirki eru einkenni rísandi sólar, jafnt í þjóðlífi sem á himni.
Ríki hinnar goðumbornu listar á sér hásæti í morgunsól. íslenzkt þjóðlíf
hefur á undanförnum áratugum verið að rísa úr húmi aldanna. Allir krefj-
ast síns réttar, vilja baða sig sem ríkulegast í þeirri árdegissól, sem loks hefur
risið upp síðan Sturlungar riðu um héruð. Hver kynslóð ber sinn svip. Sag-
an mun dæma okkur, þegar við verðum orðinn hluti fortíðar.
Við verðum að hyggja eftir, hvað það er, sem við viljum flytja í skaut
framtíðar, — hvernig við eigum að nýta stundina sem bezt.
Skólamál hafa verið mjög á döfinni. Tveir fundir hafa verið haldnir hér í
skólanum, annar um skóla og skólamál, hinn um fjölgun menntaskólanna.
Var athyglisvert á fyrri fundinum, hvað mönnum var mikið í mun, að leik-
fimismálum yrði komið í betra horf. En slíkar umræður eru e. t. v. í fullu
samræmi við þann þroska, sem skólafyrirkomidagið, eins og það er, hefur
möguleika á að veita nemendum. En gallar annarra námsgreina eru eflaust
svo augljósir, að ekki tekur að ræða þá.
Miklar hugleiðingar voru einnig um, hvernig fyrirkomulaginu skyldi
háttað í framtíðinni. Allir eru sammála um, að fjölbreyttari deildaskipting
þarf að verða, og mun það vera eitt það helzta, sem fyrirhugað er, svo og
MUNINN 7L