Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.03.1965, Qupperneq 7

Muninn - 01.03.1965, Qupperneq 7
PÉTUR PÉTURSSON: Hlutverk blaðaútgáfu í menntaskóla Árið 1927 hófust nokkrir framtakssamir nemendur Gagnfræðaskólans á Akureyri handa við að gefa út skólablað. Aðalhvata- maður að útgáfu blaðsins var Karl ísfeld, sem síðar varð víðkunnur fyrir ljóðaþýð- ingar sínar og ritsnilld. Þetta litla skólablað hlaut nafnið Muninn, án efa í samræmi við nafn málfundafélagsins Hugins, sem þeg- ar hafði starfað í nokkur ár. Fyrsta tölu- blaðið var ekki stórt, en samt markar út- koma þess tímamót í sögu Gagnfræðaskól- ans á Akureyri, sem síðar varð svo mennta- skóli. Þetta var tilraun til að auðga skóla- lífið af menningarstraumum og hún heppn- aðist. Muninn hefur komið út nær óslitið síðan og þjónað mikilvægu hlutverki, ætíð verið skóla sínum til sóma. Um það má raunar lengi deila, hvert skuli vera hlutverk Munins og annarra blaða, sem gefin eru út í menntaskólum landsins. Ávallt eru einhverjir óánægðir, telja skólablöðin hundleiðinleg og segja, að ritnefndir þeirra kasti öllu léttu og skemmtilegu efni, sem ekki stenzt harðar, bókmenntalegar kröfur. Séu þessir „gagn- rýnendur" inntir eftir því, hvers konar efni þeir vilji að birt sé, þá svara þeir annað- hvort engu til eða æskja fleiri slúðurdálka, íþróttaþátta og dægurlagatexta. Svo eru enn aðrir, sem átelja ritnefndir fyrir að hleypa í gegn allskyns ómerkilegum rit- smíðum, sem setji blett á heiður viðkom- andi blaðs. Á þessu sézt, hversu skoðanir manna eru skiptar um þetta mál. Að mínu viti þurfti hlutverk skólablaða í menntaskólum einkum að vera tvíþætt: að gefa ungum ritsmiðum kost á að birta verk sín og hvetja þá þannig til andlegra iðkana, og svo er skólablað ómissandi öllum menntaskólanemum, og ber þar margt til. Skólablað varðveitir minningar frá menntaskólaárunum og auðveldar gömlum nemendum að minnast löngu liðinna at- burða, sem sveipast reyndar oft dýrðar- ljóma uppvaxtaráranna. Skólablað getur því haft sagnfræðilegt gildi og verið merki- leg heimild um skólalífið á viðkomandi tíma, einkum ef birtir eru þættir úr skóla- lífinu, og jafnvel ritdeilur geta haft sagn- fræðigildi, enda þótt taka verði tillit til þess, að í hita bardagans gæta skriffinnar ef til vill ekki alltaf ýtrustu sannsögli eða hógværðar. Vel skrifuð skólablöð geta líka verið ósvikinn skemmtilestur og haft fram að færa ritsmíðar, sem eru listaverk, enda sannar reynslan það. Margir snillingar á íslenzkt mál hafa ritað í Munin og jafnvel ritstýrt honum, svo sem Karl ísfeld, Bjarni Benediktsson frá Hofteigi, Einar Bragi, Steingrímur J. Þorsteinsson, Hjörtur Páls- son og margir fleiri. Þvílíkar ritsmíðar sem þessara manna hefur sérhver unnandi ís- lenzkrar tungu ánægju af að lesa. Gott skólablað, hefur því ætíð menningarlegt gildi og er lyftistöng andlegu lífi í skólan- um, enda eru skólablöð oft höfð sem mæli- kvarðar á það, á hve háu andlegu þroska- stigi nemendur viðkomandi skóla eru. Enn fremur má geta þess, að útgáfa skólablaðs örfar lesendur þess til ritstarfa og vekur þá MUNINN 75

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.