Muninn - 01.03.1965, Blaðsíða 9
Flytjendur og starfsmenn Gaudeamus. (Ljósmyndimar tók E. Sigurgeirsson.)
Gandeamus
Það hefur verið venja um margra ára skeið,
að Leikfélag Menntaskólans á Akureyri
(LMA) æfði leikrit til opinberra sýninga
hér í bæ. Hefur sýningum þessum yfirleitt
verið mjög vel tekið og þær fjölsóttar.
Að þessu sinni var þó brugðið af venju
um val á verkefni. í stað hins venjulega
leikrits var boðið upp á samsetta dagskrá.
Tel ég æskilegt, að slíkt fyrirkomulag verði
haft á sýningum Leikfélagsins, a. m. k.
öðru hvoru. Kemur þar til, að með því gæf-
ist fleiri nemendum tækifæri á að koma
fram opinberlega og hljóta þann reynslu-
þroska, er því fylgir. Vil ég nefna sérstak-
lega Jrá, sem hafa kunnáttu eða þjálfun á
einhverju ákveðnu sviði, svo sem í hljóð-
færaleik, söng eða upplestri, auk þess hæfi-
leikafólks, er leikur í leikritunum.
Aður en ég ræði um verkefni LMA að
þessu sinni, vil ég geta um tildrög þess. Eru
þau með nokkuð öðrum hætti en verið hef-
ur að undanförnu. Snemma vetrar varð
stjórn félagsins ljóst, að á þessu ári gæti
starfsemin ekki orðið með sama sniði og
verið hefur. Til þess lágu helzt þær ástæð-
ur, að á hinu takmarkaða starfstímabili fé-
lagsins var ekki unnt að fá Samkomuhúsið
ti! þeirra afnota, sem nauðsynleg eru við
uppsetningu og sýningar á löngu leikriti,
og olli þetta stjórninni töluverðum vanda.
Þótti henni súrt í brotið að þurfa jafnvel
að leggja niður starfsemina af þessnm sök-
um.
Ekki var þó brugðið á það ráð. Var feng-
inn hingað Haraldur Björnsson, einn af
kunnustu frömuðum úr leiklistarheimi
Jrjóðarinnar. Leiðbeindi hann um fram-
sögn og fleira Jreim menntaskólanemum, er
þess óskuðu. í samráði við Harald var síð-
an hafizt handa um undirbúning skemmt-
MUNINN 77