Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.03.1965, Qupperneq 14

Muninn - 01.03.1965, Qupperneq 14
GUNNAR STEFÁNSSON: Hlutuerk blabaútgáfu í menntaskóla Ekki orkar tvímælis, hversu það er æskilegt og að öllu leyti jákvætt, að haldið sé uppi eins grózkumikilli félagsstarfsemi innan menntaskóla og aðstæður framast leyfa. Með þátttöku í slíku starfi gefst nemend- um kostur á að verja tómstundum sínum á hollan og þroskavænlegan hátt, stækka sjóndeildarhringinn og heyja sér reynslu, sem iðulega reynist notadrjúg síðar á lífs- leiðinni. Til slíkrar sameiginlegrar starf- semi telst vitaskuld sitt af hverju, en ekki sízt það félagsstarf, sem miðar að því að veita mönnum kost á „að koma skoðunum sínum og áhugamálum á framfæri bæði í ræðu og riti,“ svo vitnað sé til laga Hugins, skólafélags okkar. Það hlýtur að teljast hverjum manni heppilegt að fá tækifæri til að túlka sjónarmið sín fyrir öðrum, hvort sem hann kýs að gera það frá ræðustóli eða með penna sínum. Þetta hafa skólar flestra menningarlanda löngu gert sér ljóst, og innan þeirra, a. m. k. allra hinna æðri, eru þess vegna rekin samtök, sem hafa það markmið að glæða áhuga nemenda fyrir fé- lagsmálum almennt, og veita þeim tæki- færi til að sýna hæfileika sína og dugnað á því sviði. í þessu greinarkorni hyggst ég ræða nokkuð um biaðaútgáfu innan mennta- skóla, eins og hún horfir við frá mínum bæjardyrum, markmið hennar og hlut- verk, svo og þá erfiðleika, sem hafa löngum steðjað að henni og munu trúlega gera framvegis, ef svo fer fram sem stefnt hefur. Allir hljóta að viðurkenna, að blaðaút- gáfa er einn þýðingarmesti þáttur félags- lífs innan hvers skóla. Skólablað ætti að geta orðið dágóð spegilmynd þess, hver áhugi (sé hann á annað borð fyrir hendi) er fyrir skáldskap og slíkri andlegri mennt innan skólans. Ennfremur má líta á skóla- blað sem veigamikinn vott skólans út á við, vott, er sýnir mætavel, hvort menningarlíf hans stendur með blóma eða ekki. Vitan- lega ætlast enginn til, að skólablað birti á síðum sínum ritsmíðar, sem skipa megi á bekk með sígildum bókmenntaperlum. Eigi að síður verður að krefjast þess, að í blaðinu sé a. m. k. eitthvert bitastætt efni, sem réttlæti þá fyrirhöfn, sem útgáfa blaðs hlýtur að kosta. Sé engu slíku efni til að dreifa, er augljóst, að forsvarsmenn blaðsins hafa ekki erindi sem erfiði, og naumast annað fyrir hendi en að fyrirtækið leggi upp laupana. Nú eru það alls ekki mín orð, að sú hafi orðið raunin á um blaðaútgáfu þessa skóla. Ég álít einníitt, að blöð hans séu yfirleitt góð, a. m. k. sízt verri en búast má við, sé tekið tillit til allra aðstæðna. Ef hugleitt er, hversu háttað er þeim jarðvegi, sem skólalífið lætur blöðunum í té, mun þessi fullyrðing mín verða mönnum skiljanlegri. Eins og öllum má ljóst vera, hlýtur hver skóli að vera spegilmynd þjóðfélagsins sjálfs — og á líka að vera það. Skóli, sem stendur utan og ofan við það þjóðfélag, sem hann er sprottinn upp af, er ekki góð- ur skóli. Hann er þá orðinn eins og hús, sem er grundvallað á sandi og hlýtur að hrynja, er fyrstu stormarnir blása. En skól- inn okkar er ekki þannig úr garði gerður fremur en væntanlega aðrar menntastofn- anir íslenzkar. Hann er sprottinn upp af íslenzkri rót og hófst til vegs og virðingar á mesta framfaraskeiði, sem runnið hefur yfir þessa þjóð. Því er oft á lofti haldið, ekki sízt á hátíð- legiim stundum, hversu okkur Islending- 82 MUNINN

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.