Muninn - 01.03.1965, Blaðsíða 16
HIÐ GLEYMDA ORÐ KRISTS
Á KROSSINUM
Öllu er lokið,
ég ætlaði að frelsa heiminn,
en enginn skildi kærleikans gullnu rök,
sem gefa okkur fyrirheitið um frið,
framtíð miklu bjartari en áður.
Enginn skildi,
og illvirkjans varð mín sök.
Af yfirvöldum dæmdur að lýðsins vild.
Krýndur þymikórónu sannleikans,
krossfestur þeirra vegna, er síðar koma.
Um miskunn bið ég ekki,
aðeins hugsun.
Að fólkið megi heyra mína rödd.
Lifa í sátt. Láta kærleikann stjóma. —
Lögmál guðs í verkum sínum halda.
— fyrirgef þeim,
þeir vita ekki, hvað þeir gera.
ká há
ÉG BÍÐ EFTIR VORI
Ég bíð eftir vori
að brosi sólin aftur
á vorbjörtum vonarhimni.
Að brátt verði styrjaldir
vafðar reifum friðar
um vorhuga jörð.
ká há
84 MUNINN