Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.03.1965, Qupperneq 17

Muninn - 01.03.1965, Qupperneq 17
JONAS HALLGRIMSSON LIÐIN STUND Einfalda sæla, unað þinn hef ég teygað og andlit þitt numið í bliki liðinna stunda, þorstanum svalað í sjónhending gjafa þinna, sorgina grafið á mörkum skyns og drauma. Gleði, þú hefir gengið hjá og titrandi blómknappar hneigja í skaut þitt aldin af óbomu lífi, angan frá saklausum stundum. Hnigin er sól. Sakna ég þín. ps Við djúpar lindir, dalsins þögla gnúp þú dvelur einn og finnur blóðs þíns elfi streyma hraðar, bmna fram og brátt í blárri tign þér hrynja orð af vörum, orð sem ljúka leyndum hirzlum upp lauguð draumi er aldrei nær að rætast, draumi er forðum hrærði hjarta þitt í heiðarkyrrð á bökkum Galtarár. — Hún kemur til þín, kemur undur hljótt, kyssir munn þinn, helgar sér þín ljóð, í æðra veldi óði þínum lyftir. — Við landsins brjóst þú harmar, hörpusveinn, og heyrir gráta blómálfa í lautu. G. St. MUNINN 85

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.