Muninn - 01.03.1965, Blaðsíða 18
Fyrstu dagana í desember virtist helzt sem
nemendur hefðu ofreynt sig við framkvæmd
hinnar myndarlegu skólahátíðar, sökurn
deyfðar, sem einkenndi allt skólalífið. Samt
sem áður var Laugalandsför ákveðin, en
þegar safna átti liði, var nokkur uggur í
mönnum, grunaði margan, að Laugarlands
meyjar myndu verða illar viðskiptis. Þó
reyndist um síðir kleyft að safna saman
nokkrum hóp karlmanna úr öllum bekkj-
um skólans, og héldu þeir síðan til Lauga-
lands laugardagskvöldið 5. des. Með í för-
inni voru allmargar 6. bekkjar meyjar til
eftirlits. Ferðin kvað liafa gengið ágætlega,
að minnsta kosti hjá sumum.
Þess má geta, að sama dag kom út fyrsta
tölublað Gambra á þessum vetri. Að vísu
var blaðið ekki stórt, en lofar samt góðu um
útgáfuna í vetur.
Eftir helgina kvisaðist það, að gestavon
væri. Reyndist það sannmæli, því að á
þriðjudag kom sendinefnd á vegum
menntamálaráðs, sem veita átti menningar-
straumum inn í rykfallin menntasetur norð-
anlands. Voru þetta þeir Kristinn Hallsson
óperusöngvari, Jón Þórarinsson tónskáld,
Gísli Magnússon píanóleikari, auk Njarðar
P. Njarðvík, sem var einskonar fram-
kvæmdastjóri sendinefndarinnar. Ætlun
þeirra var að kynna Sveinbjörn Sveinbjörns
son tónskáld, og gerðu þeir það eftir hádegi
á þriðjudag við góðan orðstír. í öðrum
tíma daginn eftir var kynningin endurtek-
in fyrir efribekkinga.
Á föstudagskvöld var þriðji málfundur
vetrarins haldinn í setustofunni. Umræðu--
efnið var skólamál. Frummælendur voru
þeir Sverrir Kristinsson og Steindór Stein-
dórsson yfirkennari og ritstjóri. Fundurinn
var mjög langur og fróðlegur. Voru menn
almennt sammála um, að mikilla breyt-
inga væri þörf á hinu stirðnaða kerfi ís-
lenzkra menntaskóla. Var þetta einn lengsti
og fjörugasti málfundur, sem haldinn hef-
ur verið hér um árabil, enda héldu þrír
kennarar ræður á fundinum.
Þann 12. des. hélt svo 4. bekkur jóladans-
leik. Voru skreytingar mjög smekklegar,
þótt litlar væru. Komu þar í stutta heim-
sókn jólasveinar nokkrir. Kyrjuðu þeir
gamanvísur og gáfu litlum börnum gjafir
við þeirra hæfi.
Á mánudag kom út annað tölublað Mun-
ins. Var það mun veglegra hinu fyrra, enda
var því allvel tekið. Sarna dag var söngsal-
ur og mikið sungið.
Daginn eftir, 15. des., var Ólafur jóhann
Sigurðsson kynntur á bókmenntakynningu.
Mættir voru innan við tuttugu manns.
Sýndi Jressi aðsókn glögglega bókmennta-
áhuga menntskælinga. Fjölmenni ku hafa
verið í leikfimihúsinu þetta sama kvöld.
Jólavaka var haldin í setustofunni á
fimmtudagskvöld. Flutti séra Friðrik A.
Friðriksson jólahugvekju, og ennfremur
söng skólakórinn. Gylfi Jónsson las þarna
upp að vanda, í þetta skipti kvæði eftir
Stefán frá Hvítadal. Auk þess las Einar Har
aldsson jólasögu.
Laugardaginn 19. des. var svo jólafrí gef-
ið formlega. Raunar voru allmargir nem-
endur Jregar farnir heim. Hélt svo hver og
einn til síns heima, og kennarar vörpuðu
öndinni af feginleik.
86 MUNINN