Muninn

Årgang

Muninn - 01.03.1965, Side 19

Muninn - 01.03.1965, Side 19
Upp úr áramótum tóku menntskælingar þeir, sem úti á landi búa, að tínast til Ak- ureyrar, en það gekk allerfiðlega, þar eð snjóalög voru rnikil og óhægt um samgöng- ur á landi, og ennfremur voru margir flug- vellir fenntir í kaf. Átti kennsla að hefj- ast 5. janúar, svo sem venja er. En þegar til átti að taka, mætti ekki nema rúmlega helmingur nemenda. Var engan veginn kennslufært, t.d. hlaut Þórir Sigurðsson að tala við sjálfan sig, er hann skyldi miðla 6. bekk stærðfræðideildar af vizku sinni. En brátt rættist úr nemendafæð þessari, og 7. jan. voru allflestir menntlingar komnir til bæjarins. En þá tók að bera á því, að menn þyrftu að skreppa út úr tímum eða jafnvel heim í ból sín. Orsökin til þessa var miður hollur þrettándakvöldverður, en þar voru étnar leifar frá jólaföstunni. Held- ur virðist fæðinu í matarfélaginu fara hrak- andi, á meðan setustofan býður æ fjölbreytt- ari og betri vörur. Mun hagur setustofunn- ar nú standa í miklum blóma. Brátt tók nemendur að muna í sönsfsal. o Að undangengunum háværum áskorunum á skólaganginum var gefin Salur, og þar var sungið bæði vel og lengi. Laugardaginn 16. jan. hélt Carmina dans- leik. Skemmtiatriði voru fremur fáskrúðug, upplestur og brandarar og að síðustu dans, auk kvikmyndasýninga í náttúrufræðistof- unni. Aðsókn var ekki góð. 21. janúar var hringt á Sal, en þann dag hefði Davíð Stefánsson orðið sjötugur, ef honum hefði enzt aldur. Hélt skólameistari erindi um skáldið, og að lokum las Gunnar Stefánsson upp nokkur kvæði eftir Davíð. Sama dag hófust hinar árlegu bekkjaferð- ir í Skíðahótelið. Voru þær í ár með svip- uðu sniði og í fyrravetur. Lagt var af stað frá heimavistinni um kaffileytið, dvalið einn dag efra og komið aftur um hádegi þriðja daginn. Eyddu menn tímanum þar efra við skíðaferðir, og sumir renndu sér á rassinum eða á andlitinu. Ekki urðu nein óvenjuleg meiðsli á mönnum, svo vitað sé. 22. dag janúarmánaðar var tónlistarkynn ing í setustofunni. Kynnt voru norrænu tónskáldin Grieg og Sibelius. Kynningin var ekki fjölmenn, en tókst allvel. Laugardaginn 30. var Salur til minningar um Winston Churchill, sem var til moldar borinn þennan sama dag. Fór skólameistari örfáum orðum um hinn látna stjórnmála- skörung, og að síðustu var hálfrar mínútu þögn. Sama dag var kvikmyndin „Sammy go- ing south“ sýnd á vegum Borgarfilmunnar. Var þetta önnur kvikmyndasýningin, sem þessi samtök hafa staðið að í vetur. Um kvöldið var svo skóladansleikur. Um hann sáu íþróttamenn. Skemmtiatriði voru upplestur og bítlamúsík. Fámennt var, en þrátt fyrir það skemmtu menn sér allvel. Segja má, að talsverð deyfð hafi ríkt í félagslífi skólans þennan mánuð. Orsökin er vafalaust sú, að í janúar standa þrír bekkir skólans í miðsvetrarprófum, en próf hafa, sem kunnugt er, ávallt mjög lamandi áhrif á allt andlegt líf. Læt ég hér staðar numið að sinni. ip. Gísli Jónsson í tíma hjá III. c.: „Kölski var annálaður hagyrðingur." MUNINN 87

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.