Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.03.1965, Qupperneq 29

Muninn - 01.03.1965, Qupperneq 29
Viá vatniá Ég sit í grasinu og horfi út á vatnið. Það er logn, og vatnið er spegilslétt, nema þegar silungurinn vakir eða flotholtið mitt hreyf- ist undan þunga línunnar. í>að er sólskin og þurrkur, en ég þarf ekki að vinna í heyi í dag, af því að það er sunnudagur. Mér leiðist annars oft á sunnudögum. Það get- ur verið leiðinlegt að leika sér aleinn, þegar maður er orðinn ellefu ára. Þá er oft skást að veiða, jafnvel þótt maður verði ekki var í heilan klukkutíma eins og núna. IJað skrjáfar í grasinu fyrir aftan mig. Stúlka á líku reki og ég kemur hlaupandi. Ég þekki hana ekki, en fæ brátt að vita, að hún er nýkomin á næsta bæ og henni leiðist líka í dag. Hún stingur upp á, að ég komi heim með henni, og ég samþykki það. Ég fer að vinda inn línuna og stríði henni á því, að hún sé fiskifæla, en ég sé ekki, hvort hún móðgast, því að nú er kippt í færið. Hann er kominn á. Við fylgjumst bæði spennt með fiskinum, þar til hann liggur á bakkanum. Þá losnar hann af önglinum og spriklar í grasinu til að reyna að komast út í vatnið aftur, en ég kasta honum lengra upp á bakkann og næ svo í stein til að rota hann. „Ekki drepa silunginn," segir stúlkan, og ég hætti við það, en óska þess innilega, að hún væri strákur. „Hvers vegna ekki?“ spyr ég. „Hann er ekkert meiddur, þú getur sleppt honum.“ Ég íhuga málið. Silungurinn er reyndar ekki stór, en hann er ætur. Auk þess er svo skelfing leiðinlegt að koma ekki heim með neitt. „Ég á silunginn,“ segi ég. „Ég veiddi hann.“ „Hver átti liann áður?“ spyr hún. „Björn,“ segi ég. „Hann á vatnið og sil- ungana í því. Hann leyfði mér að veiða.“ „Af hverju eiga silungarnir ekki vatnið?“ spyr stúlkan. „Leir búa þar.“ „Þeir geta ekki átt neitt, þeir eru bara fiskar." „Þeir eiga að minnsta kosti sjálfa sig,“ segir hún. „Líka þessi, þótt þú sért búinn að veiða hann.“ „Hann beit á öngulinn!" segi ég og reyni að láta eins og mér finnist, að ég eigi enga sök á þessari glópsku silungsins. „Hann hefur ekki séð línuna,“ segir stúlk an og horfir enn á silunginn, sem nú er tekinn að dasast. „Svo hefur hann kannski verið svangur." Mér finnst þetta lítil afsökun fyrir sil- unginn, en samt er steinninn, sem ég held á, orðinn nokkuð þungur, miklu þyngri en svona lítill steinn getur verið. Ég kasta honum út í vatnið. „Þú verður þá að segja, að ég hali fengið hann,“ segi ég, um leið og ég tek um hnakk- ann á silungnum. Hún lofar því, og ég hendi silungnum á eftir steininum. Hann buslar svolítið í vatnsskorpunni, en hverfur síðan, og vatnsflöturinn verður aftur slétt- ur, svo hægt er að sjá bláan himininn og hvít skýin langt niðri í vatninu. Við göngum af stað, og hún talar í sífellu. En ég hlusta ekki á hana. Ég er að hugsa. Hefði ég ekki átt að drepa hann? Alstaðar eru menn að drepa fiska, og úti í löndum eru menn, sem drepa aðra menn til þess að eignast eitthvað. Og þó eru þeir líka drepn- ir, sem ekkert eiga nema lífið. Alveg eins og silungurinn. Og ég, sem á svo margt, ætl- aði að taka það eina, sem silungurinn átti, frá honum. En myndu aðrir skilja, hvers vegna gerði ég það ekki? (Framh. á bls. 102) muninn 97

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.