Muninn - 14.12.1988, Síða 4
Formannspistill
Kæru skólasystkin
Þá er komið að jólum
og farið að síga á seinni
hluta annarinnar. Fram-
undan er langt og vonandi
gott jólafrí svona rétt fyrir
prófstressið.
Það má segja að fyrri
önn hvers skólaárs fari
mikið í þreifingar á milli
nemenda. Tæplega 200 nýir
nemendur koma í skólann,
fólk sem þarf að byrja á að
aðlaga sig að nýjum skóla
og nýjum aðstæðum. Þetta
kemur oft niður á
félagslífinu til að byrja með
en það tvíeflist eftir því sem
líður á og nær hámarki á
seinni önninni. Því þá ætti
að vera hægt að finna nóg til
✓
að dunda sér við. I
sannleika sagt er svo mikið
fyrir stafni að koma þarf til
geysileg samhæfing til að
stóratburðir rekist ekki á.
Svo drepið sé á helstu
viðburði á næstu önn má
nefna að fyrirhugað er að
taka á móti Fjölbrautaskóla
Suðurlands í febrúar og
VMA-MA dagamir verða í
mars. Listadagar verða svo
strax eftir páska, í byrjun
apríl. Einnig mun starfsemi
einstakra félaga verða
blómleg og má þar nefna að
Málfundafélagið mun fara
á fullt skrið með
bekkjakeppni í ræðu-
mennsku, ÍMA-félagar
þeytast landshomanna á
milli í keppnisferðum,
Leikfélagið setur upp
veglegt leikverk með
vorinu o.fl. o.fl.
Það er því von mín að
þið, nemendur góðir, liggið
ekki á liði ykkar og að
félagslífið hér í MA verði
jafnauðugt og þroskandi og
það hefur verið hingað til.
Það er nefnilega staðreynd
að þátttaka í félagslífi er
ekki síður þroskandi en
námið sjálft. Það gerir
okkur kleift að þroskast
sem virkir þjóðfélags-
þegnar í lýðræðis-
þjóðfélagi.
Formaður skólafélagsins
Magnús Björnsson
Muninn 4