Muninn - 14.12.1988, Page 5
LEITIN Að BERNSKUNNI
Er barnalegt að vera
fullorðinn? (Erindi flutt á
ráðstefnu um mikilvægi
bamhverfrar kvikmyndahyggju
í nútímaþjóðfélagi.)
Nú á tímum
gervigreindar og frjálsrar
samkeppni, í hinu gegnsýrða
neysluþjóðfélagi efnishyggj-
unnar verður sífellt nauð-
synlegra að finna sér hugarfró
við hæfi. Viðfangsefni sem
auðga andann og hjálpa fólki að
gleyma amstri hversdagsleikans
eru hverjum manni jafn þörf og
frumstæðustu hvatir hans. Það
er því engin tilviljun að sífellt
fleiri leita fróunar í bemsku
sinni. Ein árangursríkasta
aðferðin ( af mörgum
sérfræðingum talin sú allra
árangursríkasta) er framkvæmd
þrjúbíófélags MA á stefnu
hinnar barnhverfu
kvikmyndahyggju. Það er að
hverfa aftur til bemsku sinnar í
bíósölum bæjarins, og horfa á
meistaraverk barnhverfrar
kvikmyndahyggju í sínu rétta
umhverfi, það er innan um æsku
vorrar þjóðar.
Eitt gleggsta dæmið um
áhrifamátt þessarar aðferðar er
ferð þrjúbíófélagsins á myndina
Svarti potturirin sunnudaginn 4.
desember síðastliðinn. Einmitt
þá urðu tveir umsækjendur í
félagið vitni að slíkum hug-
hrifum að við guðlegri
opinberun lá. í stórum dráttum
fjallar myndin um svínahirðinn
Darra og skyggna grísinn Hen
Wen. Hyrndi kóngurinn stelur
Hen Wen af því að skinkan veit
hvar svarta pottinn er finna.
Pottur þessi býr yfir voða voða
vondum krapti sem varð til í
fyrndinni. Þá var uppi kóngur
sem var svo illur að guðimir
bræddu hann ofan í umræddan
pott.
Hymdi kóngurinn vill ná
í pottinn og leysa hin illu öfl úr
læðingi og reyna þannig að feta
í fótspor eftirrennara sinna,
Napoleons og Hitlers og ná
heimsyfirráðum. Darra tekst að
bjarga álegginu en er sjálfur
(himin) höndum tekinn og í
dýflissu orpið. Þaðan tekst
honum með hjálp prinsessu (gat
skeð!), sverðs og hirðskálds að
sleppa. Gurgi, sem Darri hafði
lítillega kynnst í skóginum sýnir
þeim með glöðu geði hvar
beikonið er að fínna og verða
miklir fagnaðarfundir og gleðin
geislar af andlitum unga
fólksins og áleggsins. Þetta
fríðafömneyti mínus jólasteikin
fara síðan og finna pottinn og
kaupa hann á flóamarkaði hjá
þremur nomum. Birtist þar
skyndilega heil hersveit frá
hyrnda kónginum og handtekur
heila klabbið. Kóngurinn með
hornin hrindir áætlunum sínum í
verk en Gurgi fómar lífi sínu
(sem er nú ekki alveg satt) og
stekkur oní pottinn. Síðan
sogast kóngófétið oní pottinn og
þau fara aftur á flóamarkaðinn
og skipta á pottinum og Gurga.
Hápunkturinn var
tvímælalaust þegar litla græna
óféti hyrnda kóngsins hló þegar
það var ekki skammað. Úti er
ævintýri! Megi
mátturinn vera með ykkur!
P.S. íþrótta og
æskulýðsfulltrúi félaxins vill
vekja athygli Silju á því að þetta
er viskastykki, ekki slæða.
Einkunnagjöf:
Muninn 5