Muninn - 14.12.1988, Blaðsíða 8
Nýnemi
Nafn: Halldór Gunnar Ólafsson.
Bústaður: Skagaströnd (Höfðakaupstaður).
Áhugamál: Skák, bridge, skíði, allur
veiðiskapur og kökurnar hans Lalla.
Uppáhaldsmatur: Rjúpur.
Uppáhaldsdrykkur: Malt og appelsín, blandað
saman.
Uppáhaldsíþróttamaður: Belladonna (bridge-
spilari).
Uppáhaldseftirmatur: Vellingur með möndlu
í (og verðlaun með!)
Fallegasta konan: Herra Heimavist.
DraumastarFið: Bankastjóri.
Pólitískar skoðanir: Engar.
Mottó: "Hláturinn lengir lífið" og "þú kemur
bara á föstudaginn og borgar við kassann."
Af hverju komst þú hingað í M.A. en ekki í
einhvern annan skóla?
-"Af því að þetta var áhugaverðasti skólinn í
nágrenni við mig og ég vildi ekki fara í verknám
af því að ég er ekki enn ákveðinn í því hvað ég
ætla að gera í henni framtíð, og svo er þetta
auðvitað besti skólinn!"
Hvað hefurðu svo gert þér til skemmtunar
síðan þú komst hingað?
-"Með því fyrsta sem ég og vinir mínir gerðum
var að kíkja á stelpu í sturtu og leggja okkur svo
í mikla hættu við að tína blóm úr næstu görðum
handa henni, svona í sárabætur."
í hvaða félögum ertu?
-"Ég er í Brima, Sauma og Skákfélaginu."
Eitt aðaláhugamál þitt er bridge, hvað spilar
þú oft í viku?
-"Ég spila alltaf eitthvað á hveiju kvöldi."
Á hvaða braut ætlar þú?
-"Enn sem komið er, veit ég það ekki, en ég tel
mjög líklegt að ég fari á náttúrufræðibrautina."
Eitthvað að Iokum?
-"Nei, það held ég ekki."
Takk fyrir.
Muninn 8