Muninn

Årgang

Muninn - 14.12.1988, Side 15

Muninn - 14.12.1988, Side 15
þeir fyndu því slíkt er eðli frunsudverga. Frunsudvergar voru jafn-óskemmtilegustu verur Stóraskógar. Þeir voru þjófóttir, undirförulir, lygnir, tilfinningalausir, svikulir og svo skelfilega ófrýnilegir að samkvæmt lögum skógarins var þeim bannað að láta sjá sig ofanjarðar. En þeir skeyttu því að sjálfsögðu engu og gerðu sér það oft til gamans að fara upp á yfirborðið til að hræða aðra íbúa skógarins. Þeir voru einnig með afbrigðum fégráðugir og glysgjarnir og verstir allra frunsudverga voru einmitt þeir Frosti og Frekur. Og þetta vissi Flautaþyrill og því grunaði hann þá auðvitað fyrsta allra. Hann vissi að það þýddi ekkert að reyna að ná inniskónum af þeim áheimavelliþeirra ímyrkviðum Stóraskógar. Hann vissi líka að það hlyti að vera ástæða fyrir þessum þjófnaði úr því þeir hættu sér svo langt frá myrkum heimkynnum sínum til þess eins aðstelainniskóm! Já,það hlaut að vera gild ástæða fyrir þessum þjófnaði. Ogauðvitaðlá beinast við að álykta að þeir ætluðu að nota skóna til að stela frá fólkinu í Skógardal. "Við verðum að stöðva þá", sagði Hróbjartur, "en hvemig?" Þeir veltu þessu fyrir sér um stund og skyndilega hrópaði Flautaþyrill upp yfir sig: "Nú veit ég!" Hann stökk á fætur, hljóp inn í svefnherbergið sitt og kom til baka með inniskó og grænsápustykki. "Þetta eru inniskómir sem ég nota dags daglega og þeir eru glettilega líkir hinum í útliti en eru bara venjulegir inniskór." Þeirflýttu sér að hlaða sleðann hans Flautaþyrils gjöfum og setja hreindýrin Hlöðver og Lúðvík fyrirhann. Þaðyrði enginntími til þess að koma aftur og sækja gjafimar ef áætlun Flautaþyrils heppnaðist. Svo þeystu þeir af stað. Það var hætt að snjóa og hvert sem litið var blasti hvít snjóbreiðan við. Fyrir ofan glitraði á þúsundir stjama sem kepptust við að skína sem bjart- ast. Það var rúmlega klukkutíma sleðaferð niður í Skógardal og þegar þeir komu þangað var allt með kyrrum kjörum. Þeir sáu þess engin merki að frunsudvergaskammirnar væm komnar í bæinn. "Gott, við erum á undan þeim", sagði Flautaþyrill, "við bíðum þá bara rólegir." Þeir höfðu ekki beðið nema í hálftíma er þeir heyrðu mas og hvás. Þeir vissu undireins hveijir voru hér komnir því svona másaði enginn nema Garmur, úlfur þeirra Freks og Frosta. Og örskömmu síðar renndi stór og ljótur sleði inn í bæinn. Og mikið rétt, þama sátu ófétin og knúðu Garm greyið óspart úr spomnum. Þeir staðnæmdust fyrir framan hús bæjarstjórans. "Hefðarfólkið fyrst", sagði Frosti og Frekur ískraði af hlátri. Þeir tóku nú að undirbúa ódæðin og Frosti byrjaði á að klifra uppá þakið á húsi bæjarstjórans. Flautaþyrill var í óða önn við að nudda grænsápunni neðan á inniskóna sína og sagði við Hróbjart: "Jæja, Hróbjartur litli, nú er komið að þér. Nú laumast þú að sleðanum þama og tekur inniskóna góðu og lætur þessa í staðinn." Frosti og Frekur vom alltof önnum kafnir við að reyna að koma Fros ta upp á þ akið til að taka eftir litla jólaálfinum sem laumaðist eins hljóðlega og hann gat að sleðanum þeirra, klifraði varlega upp í og hljóp stuttu seinna eins og fætur toguðu fyrir næsta húshorn þar sem Flautaþyrill beið hans með öndinaíhálsinum. "Þettaverður spaugilegt að sjá", sagði Flautaþyrill og nú ískraði Muninn 15

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.