Muninn - 14.12.1988, Side 20
Laugarvatnsferð
Séð með augum íþróttamanns
Helgi eina í nóvember
fór fríður flokkur M.A.-inga í
strandhögg að Laugarvatni.
Hópurinn samanstóð af
einvalaliði kappa og valkyija
enda var ætlunin að taka
Laugvetninga ærlega í nefið.
Gekk það að sjálfsögðu eftir
fyrir utan örfáar (=allmargar)
undantekningar sem sanna
aðeins regluna.
Barátta þessi byrjaði
með fótknattleik karlvera og
kvenvera. Karlverur vorar
sigruðu en kvenverurnar
töpuðu. Er skemmst frá því að
segja að í fyrra tilfellinu var um
mjög sanngjarnan sigur að ræða
en í hinu voru úrslitin hin
ósanngjörnustu. Annars munu
leikfimiæfingarÁmaHermanns
sonar í marki karla sennilega
teljasteftirminnilegastar. Sýndi
hann þar hið ásjálegasta
prógramm gólfæfinga sem ein-
kenndist af ýmist splitti eða
spígati á marklínunni. Kom
✓
þessi leikfimikunnátta Arna
Laugvetningum algjörlega í
opna skjöldu enda vannst leikur-
inn.
Þá kom að því að kljást
við Sunnlendinga í körfubolta.
Kvenfólkið gerði sér lítið fyrir
og tapaði eftir hetjulega baráttu.
Mega þessi úrslit teljast
óskiljanleg, ekki síst vegna þess
að Jón Már hefur ekki legið á liði
sínu við þjálfun stúlknanna í
vetur. Þó sagði mér lítil
húsamús sem býr úti í fjósi, að
Jón Már sé e.t.v. of myndarlegur
maður til þess að hinar villtu
meyjar haldi athyglinni
eingöngu við körfuboltann.
Karlpeningurinn ætlaði nú að
bæta um betur, en... Það kom
nefnilega í ljós í byijun leiks,
öllum til mikillar skelfingar, að
undirbúningur liðsins hafði að
mestu gleymst aukþess að sumir
Heimavistarbúar, sem höfðu
fengið sitt körfuboltauppeldi í
Fjósinu, fengu víðáttubijálæði
er inn á glæstan völlinn kom.
Staðan var orðin 14-0 M.L. í vil
þegar M.A.-ingar uppgötvuðu
að körfumar voru til að skjóta
ofan í þær boltanum. Breikkaði
bilið ekki eftir þessa merku
uppgötvun Norðanmanna.
Nú tóku frjálsu
íþróttimar við. Verða þær að
teljast ein besta skemmtun
ferðarinnar. Gekk með
afbrigðum illa að fá fólk með í
ferðina til að keppa í frjálsum.
Því var hver kjaftur gripinn sem
á staðnum var og sem löpp gat
valdið og honum þröngvað í
einhveija greinina. Varð áran-
gurinn eftir því hinn skraut-
legasti. Hástökkið var fyrst á
dagskrá og hugðust M.A.-ingar
sýna þar gríðarlega snilld sína í
að svífa yfir hástökksrána.
Heldur tókst þá hrapallega til og
lentu þeir í neðstu sætunum í
báðum flokkum. Hér er heppi-
leg afsökun þreyta, til að mynda
hafði annar M.A. piltungurinn
útkeyrt sig í körfuboltanum og
voru honum því afar krosslagðir
fætur er að ránni kom. í kúlunni
gekk örlítið betur. Þar vakti þó
aðallega athygli rimma þeirra
skólafélags formanna,
Magnúsar M.A.-ings og
Jóhannesar M.L.- ings. Bar
Jóhannes hærri hlut frá
viðureigninni en til að rétta
okkar hlut má Maggi teljast
ótvíræður sigurvegari miðað við
stærð. Jóhannes er tröll að
burðum.
*
I langstökki héldu
Norðanmenn áfram hetjulegri
baráttu sinni. Þar bar helst til
tíðinda að Eldingin (viðurnefni
á Árna Hermannssyni) byijaði
feril sinn sem langstökkvari.
Hafði Árni enga reynslu í
þessari íþrótt en eftir að hafa
fengið það staðfest frá
ektakvinnu sinni, formanni
ÍMA að stökkva ætti af
tréflekanum yfir á dýnuna var
honum ekkert að vanbúnaði og
barðist hetjulega þó ekki tækist
honum að slá íturvöxnum
Laugvetningum við.
Þó var beðið með mestri
eftirvæntingu eftir spretti karla
því spurst hafði út að Eldingin
Muninn 20