Muninn - 14.12.1988, Page 27
Orð
Ljóð
Orðin dansa
þau dansa
líkt og köttur í kring um heitan pott
svartur köttur.
Kis, kis,
komdu kisi minn
komdu að pottinum
vertu ekki hræddur við hitann
funann, eldinn
komdu og leptu
af blóðrauðri kvikunni
af sálu minni
vertu ekki hræddur
við hitann, ástríðumar
sem velkjast og velta
í mér
hring eftir hring
í pottinum.
Dreyptu á mér
en farðu hægt
þú gætir brennt þig
þegar rauð tungan
snertir rauðan vökvann
í kossi.
Bergþór
Óður um Óðinn (Óður orðaleikur)
Jólatréð
Formáli:
Einu sinni var
ekki neitt.
-Það óx og dafnaði
og einn daginn sprakk það út.
Meginmál:
í formi jólatrés,
með fullt af nálum
-og greinum.
Sem enduðu inn í stofu
-á aðfangadagskvöld.
-gaman -gaman
allir dansa.
-Jólatréð glitrar.
Lokaorð:
Jólin eru búin
jólatréð glitrar ekki lengur
og jólatré er orðið að ösku.
-Og lífsgæðakapphlaupið
byrjar aftur í allri sinni dýrð.
Heimildir:
-Hugur minn
og óskrifað blað
sem mannshugurinn er.
Gönnó
Óðinn! Óðinn!
Óð Óðinn inn?
Óðinn óð inn.
Samdi Óðinn óðinn?
Óðinn samdi óðan óð,
en ekki þennan!
Dulnafni.
Muninn 27