Muninn

Volume

Muninn - 01.12.1990, Page 20

Muninn - 01.12.1990, Page 20
þetta. Á þessum fimdum fá þeir sem hafa áhuga á að vera með að spreyta sig á því að flytja ræður um hitt og þetta. Stjóm MFH og velviljaðir aðstoðarmenn fylgjast með þessu og á endanum em valdir úr hópnum þeir sem þykja líklegastir til að standa sig vel - og geta gefið sér tíma til að vinna að þessu. Og þetta starf tekur tíma, það er engin lygi. í haust fór svo að í liðið völdust Axel Axelsson, Hjörvar Pétursson og Þor- valdur Lúðvík Siguijónsson. Liðsstjóri í fyrsta leik var Tryggvi Bjöm Davíðsson. Harðsnúið hð aðstoðar- manna úr hópi nemenda hefur verið til hjálpar við að semja ræður, vega þær og meta. Það skal tekið fram að í upphafi var mark- ið sett svo hátt að nú skyld- um við komst í úrsht í Háskólabíói! FYRSTA UMFERÐIN Það var óneitanlega gríð- arleg spenna í loftinu þegar dregið var um umræðuefhi og mótherja í fyrstu umferð okkar. Drátturinn fór svo að við lentum á móti MH. og áttum að vera andvígir því að geimferðir yrðu bann- aðar. Mönnum leist vel á þetta umræðuefni og töldu að það væri okkur í hag. En síðdegis þennan örlaga- ríka dag var hringt í okkur og tilkynnt að þetta um- ræðuefni væri ónothæft, það væri búið að nota það áður og þess vegna yrði að ákveða nýtt efhi. Eftir töluvert stapp var ákveðið að við ættum að vera því andvígir að frelsi væri ánauð. Ræðusmiðir og hug- myndafræðingar hófu þegar verk sitt, en þeim veittist það erfitt, þetta mnræðuefiii þarfnast nefnilega töluverðr- ar þekkingar á heimspeki og hugmyndafræði. Heppn- in var með okkur og við fengum einhvem fróðasta mann um þetta efni til liðs við okkur Kiistján doktor Kristjánsson. Nú héldum við að létt verk væri fyrir höndum. En raunin varð önnur. Nú hófst tími svita, tára og andvökunátta. Við hömu- ðvunst nótt sem nýtan dag við að semja, þetta var í annað skipti sem okkur var úthlutað heimspekilegu efhi og í fyrra skiptið töpuðum við, en nú dugði ekkert annað en blákaldur sigur. Með eld í æðum og glampa í augum börðiimst við áfram með dyggum stuðningi hugmyndafræðinga og annarra stuðningsmanna (heih sé þeim.) ÁFALLIÐ Eftir tæpa viku sáum við loks fyrir endann á pyls- unni, ræður vom að verða tilbúnar og þær vom bara nokkuð góðar. Þá skall yfir reiðarslag. Sérfræðingar okkar í höfuðborginni höfðu komist að því að í Mennta- skólanum við Hamrahlíð væri ræðuhðið að skrifa um geimferðir! Við leituðum staðfestingar á þeirri frétt og sjá, hún var sönn. Hér hafði eitthvert sam- bandsleysi átt sér stað. Við gerðum okkur nú ljóst að við yrðum að byggja á ný upp frá grunni. Snögglega slokknaði eldurinn og glampinn dofuaði. Heil vika var farin til helvítis og enn ein vinnuvikan beið manns. Við fengum nýtt umræðuefhi, enn heimspeki- legt, Vinnan göfgar mann- inn, og áttum að keppa í Reykjavík að viku liðinni, þ.e. á föstudegi. Unnið var á næturnar og sofið í skólanum, og með nýja von í bijóst og baráttu- hug í hjarta héldum við til höfuðborgarinnar við annað hundrað stuðningsmanna og "lögðum MH í rúst". Við unnum með 150 stiga mun. Ánægjan og gleðivíman var stórkostleg, loks uppskárum við laun erfiðis okkar, við komumst á síður stórblað- anna og nafn okkar var á ahra vörum. NÝIR TÍMAR Þegar hér var komið sögu áttu mannaskipti sér stað innan liðsins, Tryggvi sagði liðsstjóraembættinu lausu og maður nefiidur Birgir Örn fyllti upp í það ginnungagap sem fyrmefiidur lét eftir sig. Svo var keppt aftur og í þetta skiptið á norðlenskri grund. Enn fengum við heimspekilegt efiii. Okkur var gert að halda því fram að fáfræðin væri rót illsk- unnar. Andstæðingar okkar reyndust vera nemendur Menntaskólans í Kópavogi. MK-ingar hugðust fylkja liði og mæta með hundrað stuðningsmenn. Aðstand- endur keppninnar hér voru smeykir að ekki kæmust allir að sem vildu og að Möðruvahakjallari yrði eins þéttsetinn og sardínudós. Þessi þankagangur hvarf eins og dögg fyrir sólu þeg- ar að fréttist að rútur Kópa- vogsmanna hefðu brotnað í sundur á leiðinni og hklegt að þær kæmust ekki í tæka tíð fyrir keppni. Keppninni var seinkað um hálfan ann- an tíma en að því loknu var ákveðið að henni yrði ekki frestað frekar heldur þjrftu 20 MUNINN

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.