Muninn - 01.11.1994, Blaðsíða 19
Ríðum heim fil Hóla
Stundin var runnin upp.
Hólaferð! Það var föstudaginn 28.
okóber að hinn eini og sanni Doddi
lagði af stað frá Akureyri með 35
eldhressa Menntskælinga og
Verkmenntskælinga. Lagt var af stað
klukkan rúmlega tvö, eftir nokkra bið
eftir gítaristanum sem var sendur til að
kaupa nýja strengi.
Við vorum varla komin út úr
bænum þegar keppnin um að segja
sem bestar sögur byrjaði, en sá háttur
mun vera mjög algengur hjá
hestamönnum.
Heima á Hólum tók Valgeir
Bjarnason á móti okkur. Hann sýndi
okkur fjárhúsin og nýfæddu lömbin.
Svo fór hann með okkur í hesthúsið.
Þar tók Sigrún reiðkennari á móti
okkur. Hún sýndi okkur hesthúsin og
tók okkur í kennslustund. Hún var
bæði fræðandi og skemmtileg. Sigrún
sýndi okkur ýmis atriði í reiðmennsku,
s.s. hálflétta ásetu, stígandi ásetu,
krossgang, afturfótasnúning ofl.
Því næst var okkur boðið í
veislukaffi í Hólaskóla. Að því loknu
fór Valgeir með okkur í kirkjuna, m.a.
sýndi hann okkur grafir virtra biskupa
sem hvíla undir kirkjugólfinu.
Svo var farið í sundlaugina. En í
þessari ferð voru einhverjir prakkarar
sem skiptu á merkjum á karla- og
kvennaklefunum. Vakti það lukku hjá
sumum en öðrum ekki. Gleymdist það
þó fjótt eftir að búið var að kveðja
Hólastað, því hugurinn lá á ball inn í
Eyjafjörð. Við vorum ekki komin yrir
pípuhliðið á Hólum þegar söngurinn
var byrjaður. Hann var á svona
„normal" nótum í fyrstu, en þegar
komið var upp á Öxnadalsheiði var
söngurinn orðinn svo mikill að hann
heyrðist niður á fremstu bæi í
Blönduhlíð. í millitíðinni var komið
við í K.S. í Varmahlíð og allir fengu
þessa fínu hamborgara og franskar á
stórkostlegu tilboði.
Síðan fóru allir þeir hressustu,
sem voru flestir, á skemmtun og ball í
Laugaborg í Eyjafirði.
Hestamannafélagið Léttir stendur fyrir
slíkri skemmtun á hverju hausti. Undir
morgun, þegar allir voru búnir að rasa
nægilega út, skilaði Doddi okkur til
heimahaganna.
Hér með lýk ég frásögn minni
um þessa eftirminnilegu ferð.
Fyrir hönd HESTMA,
Arna Björg 3.H
MUNINN
19