Heimilisblaðið - 01.03.1936, Page 21
HEIMILISBLAÐIÐ
51
nxinnum að þekkja, skilja, meðtaka ou:
elska Jesúm Krist,
Phillips Brooks hafnaði að gerast kenn-
ari í kristilegri siðfræði á Harvard-há-
skóla, er honum var boðið það, en hann
tók að sér, og hafði á hendi um langa hríð,
yfirumsjón guðsþjónustunnar í háskólan-
um. Gei'ðist hann þar kennifaðir lærisvein-
anna. Voru trúaráhrif kenningar hans á
þá bæði djúp og, varanleg. Mótaði hann
svo lyndiseinkunn þeirra að þeir bjuggu
að því æ síðan.
Mörg og mikil ræðusöfn voru gefin út
eftir Pillips Brooks, sem vænta mátti.
Voru þau lesin grandgæfilega, íhuguð og
rædd um þvert og endilangt landið. Fyrir-
lesari var hann hinn snjallasti og vinsæl-
asti. Sóttust þúsundir manna eftir því að
hlýða á hann, að gagntakast af andríki
hans og auðgast af vizku hans. Hinar svo
kölluðu >>Bohlen«-fyrirlestrar hans (1879),
er hann nefndi: »Áhrif Jesú«, fengu hina
beztu áheyrn og mikla útbreiðslu. —
Phillips Brooks fekst nokkuð við kvæða-
gerð; fórst honum það vel úr hendi, sem
alt annað, er hann lagði á gjörva hönd.
Sálmurinn: Ö, litli bærinn Betlehem (0,
Little Town of Betlehem), sem hér kem-
ur fyrir almenningssjónir, hefir náð afar
mikilli útbreiðslu og alþjóðarhylli, Er
hann langkunnugastur af því, sem eftir
Brooks liggur í bundnu máli.
I borgarastyrjöldjnni (1862—4) milli
Norður- og Suðurríkjanna út af þræla-
haldinu, hélt Phillips Brooks uppi drengi-
lega og kröftuglega málstað Norðanmanna
og Svertingjanna, -— þótt hann á hinn
bóginn væri einlægur friðarhöfðingi og al-
gerlega mótsnúinn stríðum og styrjöldum.
Af því sem nú hefir sagt verið, þótt
stutt sé og ófullkomið, má nokkuð þó
marka, hvílíkur guðsmaður, trúarhetja,
og hversu sannur. lærisveinn Jésú Krists
Phillips Brooks var. Hann virðist. hafa
verið eitt hið mesta andans ofurmenni,
som kristni Bandafylkjanna hefir fram-
leitt og því í tölu ágætustu sona þeirra.
Þvílíkra, manna þurfa þjóðirnar einkum
við. Af þeim mega þær vera sannarlega
stoltar. Að fótu.m þeirra geta þær sezt, -
án þess að niðurlregja sig, — og lært af
þeim í auðmýkt hjartans alger bjargar-
ráð — sönn vísindi, Pað eru leiðtogar, -
forystumenn, — sem óhætt er og skylt að
fylgja. Þeir eru engir falsspámenn og
svils'akennarar, sem upp rísa og afvega-
leiða marga. Þeir eiga hugrekki heilagrar
boðunar. Þeir fara fyrir þjóðunum sem
eldstólpar í náttmyrkrum rau.nanna á tor-
færri göngu eyðimerkurdvalarinnar til
himinfjalla. Guðs hjálpræðis. L. S.
ll|)l>íiin<lnlng, sem veldnr byltlng-u í fiiiíí'nuiluni.
Hið þekta enska fyrirtæki Wickers er farið að
byggja flugvélar, sem eru algerlega öruggar fyrir
kúlum. Enski loftflotinn hefir þegar gert stórar
pantanir á þessari flugvélartegund; enn er öllu
haldið leyndu um byggingu vélarinnar, en sagl
er, að óhætt sé að gegnskjóta hana meo kúlum,
án þess að það saki vélina nokkuð. - Hinn frægi,
enski flugvélaverkfræðingur, Barnes Nevill Wallis.
á að hafa gert uppgötvanir, samkvæmt upplýs-
ingum enskra blaða, sem valda algerðri byltingu
á sviði flugvélasmíða. Honum á að hafa tekist
að búa til flugvél — eftir algerlega nýrri aðferð
eða reglum 1 byggingu, — nem hefir hingað til
ógrunaða burðarhæfileika, hraða og áthald.
Svo framarlega sem hægt verður að vernda þetta
leyndarmál, segja ensku blöðin, þá mun enski
loftflotinn að fáum mánuðum liðnum eiga á að
skipa hernaðarflugvélum, sem verða svo full-
komnar, að ótrúlegt mun þykja. Nokkrar slíkar
flugvélar eru nú 1 smlðum hjá Wickers-verksmiðj-
unum, og mönnum leikur sterkur grunur á, að
fleiri erlend yfirvöld muni hafa njósnara til að
komast á snoðir um leyndarmálið við þessa flug-
vélargerð. — Fyrsta flugvélin, sem bygð var eftir
aðferð Wallis, hafði úthald til 13000 kíiómetra
flugs, Er það sama sem 26 sinnum yfir endilangt
island. — Þetta mikla úthald, sem þessi nýja
flugvélartegund Mr. Wallis hefir, er aðallega
nýrri léttri málmsamsetningu að þakka, sem
hann hefir sjálfur fundið upp. Þar að auki eru
vængirnir mikið stærri en venja hefir verið
hingað til; þar af leiðandi er meira rúm fyrir
brenni en nokkur flugvél hefir haft áður. En
yfirleitt er bygging vélarinnar gerbreyting' frá
því er verið hefir.