Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1936, Page 23

Heimilisblaðið - 01.03.1936, Page 23
HEIMILISBLAÐIÐ 53 ið með augum, sem ekkert sáu. Um svart- ar varir hans lék óskemtilegt skakt ou' skælt bros. Áður en eyðimörkin náði tökum á hon- um, hafði verið góður efniviður í þessum nianni — hann hafði verið jafnoki hans er vera skyldi, meira að segja betri en flestir aðrir. Nú lá hann hér og átti að deyja — og hann vissi það sjálfur. »Eg sagði þér það. Rainy,« hvíslaði hann. »Eg- sag'ði, að þú skyldir fylgja, mér hingað. Og þú varst að gera það. Pað er nógu skrít- ið — nógu. . .. .« Lontzen fékk hóstakviðu og greip hendinni upp að kverkinni, en sami óskemtilegi broskipringurinn hélzt samt um munninn á honum. »Djöfullinn tekur alt af þann síðasta,« stundi hann upp úr sér og kastaði til höfð- inu þreytulega. Caverley laut yfir hann og greip aðra bólguþrútna hönd hans, sem með ákafa reyndi að halda fast í hann. »Eg kenni í brjósti um þig — CarL« »Nei, segðu, það ekki. Pað gerir ekkert. Það er ekkert að barma sér yfir. Bó - Bó — komdu hingað.« Lontzen fálmaði í kringum sig með hinni hendinni og fann ungu stúlkuna. »Ert þú þarna, Bó? Dugleg lítil stúlka! Nú er þér borgið - - Guði sé lof.« Rétt á eftir sag'ði hann svo: »Heyrðu, Bó, það sem ég ætla að segja (>éi- — það — það, sem ég sagði þér um Raíny — það var lygi. Hann var ekki--------.« Handleggur hans féll máttlaus niður. Röddin varð að ógreinileg'u, sundurlausu hvísli, svo að eigi var hægt að greina, nema einstök orð: »01ía — olíulindir — olía — miljónir — djöfullinn teku.r þann síðasta ------.« Röddin dó alveg ÚL Maðurinn rétti snöggt úr sárþjáðu,m limum sínum og lá síðan grafkyr. Carl Lontzen var dáinn. Caverley breiddi yfir andlit hans síð- ustu rytjurnar af kyrtli sínum og sneri sér síðan að Bó. Unga stúlkan hafði ekki hreyft sig. Hún stóð þar með þur augu og horfði niður á hina þögulu mannveru, sem hafði átt svo mikinn hátt í örlögum hennar og Caverley. Svo lyfti hún höfðinu og leit á Caverley. »Hann hefði ekki þurft að segja það,« hvíslaði hún. »Ég hef vitað það lengi, að þér gætuð aldrei hafa reynst bleyða eða mannskræfa.« Caverley kinkaði kolli. »Viljið þér fyrirgefa mér það, að ég skuli nokkurntíma hafa trúað því?« mælti Bó. Ofurlítið’ bros flaug yfir andlit hans. »Það er ekkert að fyrirgefa, Bó,« sagði hann. »Hvað vitum við menneskjurnar hver um aðra í fyrsta sinn, er við sjáumst. En nú — nú er engra skýringa þörf okkar á milli. Ég held, að við þekkjum nú hvort annað.« Bó Treves horfði ofurlitla stund út í blá- inn. Svo sagði hún: »Já, Rainy!«--------- Það var ekki fyr en eftir þrjá daga, að Caverley og Bó Treves sáu í yztu brúnina á hinu mikla sléttlendi hinu megin fjall- anna. Þau höfðu aðeins komist örstuttar dagleiðir og það með mestu fyrirhöfn og erfiðleikum, því að leiðin gegnum fjalla- skarðið var bæði löng og ótrúlega torfær. Þau höfðu fundið bæði vatn og fóður handa úlföldunum, og nú komu þau út á gróið bersvæði. Loksins voru, þau nú komin á kunnugar slóðir. Á hverri stundu gátu þau búist við að hitta vini, það er að segja útverði frönsku hersveitarinnar, sem voru á eftir- litsferð frá setuliðsstöðvunum. Og ef þau mættu. þeim ekki, var það ekki verra en það, að þau áttu þá fjögurra—fimm daga ferð fyrir höndum, áður en þau næðu írant til siðaðra manna. Héðan af var ekkert framai- að óttast,. Það var dásamlegt fyrir þau að sjá á ný grænar grundir, eftir að þau vikum saman höfðu eigi haft annað fyrir augum en svartan fjallgarðinn og gular og hvítar sandöldurnar. Ulfaldarnir höfðu drukkið og drukkið, eins og þeir fengju aldreí nægju sína — og þeir höfðu étið sig troö- fulla og litu nú vel út á ný. Bó og Caver- ley voru heldur ekki sömu vofurnar og þær, sem fyrir nokkrum dögum höfðu skreiðst út úr eyðimörkinni á stein-uppgefnum úlf- öldum. Þau voru nú farin að ná sér aftur í útiiti og yfirbragði, og þau tóku nú að finna til þess á ný, að þau voru samt sem áður manneskjur, þrátt fyrir alt. Samanborið við ferðalag það, sem þau höfðu nú að baki sér, var það sem fram- undan lá leikur einn. Það var lítið annað

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.