Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1936, Side 26

Heimilisblaðið - 01.03.1936, Side 26
56 HEIMILISBLAÐIÐ höfðu hann að hetju í draumaríki hennar. Nú sá hún hann ljóslifandi fyrir augum sér, og eitt andartak fanst henni eins og hjartað ætlaði að hætta að slá í brjósti hennar. Ilún sagði ekkert, og hún fann það fremur en sá, að hann nálgaðist hana,. Enda þótt hún gæti ekki séð andlit hans vegna barðastóra hattsins, sem hann hafði dregið djúpt niður á ennið, hafði hún það greinilega á tilfinningunni, að tvö hvöss og aðgætin augu virtu hana fyrir sér og vektu yfir hverri hreyfingu hennar. Hann var nú kominn fast að henni og staðnæmdist enn á ný án þess þó að varna henni vegarins. Hún kiptist við, jDegar hann tók til máls. »Það er hættulegt fyrir unga og fallega stúlku að vera svo seint á ferð, miss Rann.c Ef hún hefur undrast yfir því að heyra nafn sitt nefnt, þá hiefur hún gleymt því vegna hljómfallsins í röddu hans. Hún vissi ekki, hvort það var hæverskt eða háðslegt. »Ég er ekki á ferðinni án verndar,« sag-ði hún rólega og lagði hendina á skeft- ið á skammbyssunni, sem hékk við belti hennar. Hún sá ekki, að hann brosti, en hana, gru.naði Jrað fastlega. »Þá vernd hafði Sam Gitt einnig,« sagði hann. »Hún kom honum samt ekki að miklu haldi.« Sylvia hafði heyrt um Sam Gitt, póst- manninn, sem fundist hafði rændur á veg- inum með skammbyssukúlu gegnum ennið. Þetta hafði átt sér stað fyrir þrem dög- um síðan, og allan Jrann tíma höfðu íbú- * arnir í námaborginni og héraðinu í kring leitað lúsaleit í landinu á margra mílna svæði að einasta manninum, sem grunaður var um ódæðisverkið — Skugganum. Það hafði verið árangurslaust starf, og að lok- um var leitinni hætt. Fyrir tæpri klukku- stund síðan höfðu mennirnir komið heim, slituppgefnir eftir margra klukkustunda reið — og fast á eftir Jreirn hafði Skugg- inn komið .... eins og‘ skuggi. Hann sat hérna eins rólegur og öruggur og væri hann óðalsbóndi, sem væri að virða íyrir sér eign sína, og hvorki hann né hjnn dásajn- legi hestur, sem hann reið, báru hin minstu merki eftir það harðrétti, sem þeir hlutu að hafa lent í. »Það er ekki öryggi í héraðinu,« bætti hann við með röddu, sem mikið fólst í. »Eg veit það,« sagði hún. »Menn hafa verið að leita Skuggans í síðustu þrjá daga.« Maðurinn tautaði eitthvað, sem vel gat verið blótsyrði. Svo sagði hann háðslegar »Morðingja Sam Gitts.« »Já,« svaraði hún, og rödd hennar titr- aði dálítið. »En Sam Gitt var góð skytta. Hann féll í heiðarlegum bardaga. Hann fekk sinn möguleika.« »Morð er Jdó altaf morð,« heyrðist frá manninum, sem ekki var hægt að sjá fram- a.n í. »Spyrjið I>ér sheriffann*).« »Maðurinn, sem drap Sa.m Gitt,« sagði Sylvia, »er eltur á röndum. Það er því ekki undarlegt, þótt hann grípi til örþrifaráða.« Maðurinn á dökkbrúna hestinum leit meo athygli á hana. Hann lét hestinn ganga, eitt skref áfram og gerði hreyfingu eins og hann ætlaði að leggja hendina á hand- legg henni, en hann hugsaði sig um. Þá sagði hann með röddu, sem var áberandi róleg: »Þér fordæmið hann þá ekki?« »Ég fordæmi aðeins verknaði hans.« »Maðurinn er eins og verknaðir hans. Er það ekki þannig, sem menn taka til orða?« Unga stúlkan hristi höfuðið. »Ég trúi ekki öllu því illa, sem ég heyri sagt um hann,« sagði hún þrákelknislega. Svo leit hún upp og sneri andliti sínu beint að honum. »Ef hann væri eins og alliv *) Hefur verið iagt út skírfsgrell'i, en slíkur maður er vörður laga og réttar í sínu lögsagnar- umdæmi (shire). Hinu orðinu, íslenzkuðu, verðui' haldið i þessari þýðingu. — Þýð.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.