Heimilisblaðið - 01.01.1939, Blaðsíða 4
2
HEIMILISBLAÐIÐ
Skuggsjá.
Jarðskjálftinn mikli i Cliile.
í jaröskjnlftununi miklu í Chile 25. janúar fór-
ust um 30 000 manna og 50 000 lemstruðust meira
og minna. Ibúunum ú því svæði líöur mjög ilia,
þvl að öll símasambönd slitnuðu, svo að ekki vai-
hægt að lút.a vita, hvernig sakir stóðu I raun og
veru. Ráðstafanir voru gerðar til að koma I veg
fyrir drepsóttir. Á öllu landskjálftasvæðinu eru
rústir. Borgirnar Limares, Parrel og San Carlos
eru gjöreyddar, eins og C h i 1 1 a n. Petta gerð-
ist allt á 3 mínútum. 1 síðastnefndu borginni
er allt I rúscum, og af bjarmanum af eldunum urðu
rústirnar háifu ógeðslegri. I Chillan bjuggu 40 000
manna. Alistaðar lágu dauðir menn og særðir.
Peii’, sem eftir lifa, segja að landskjálftinn hafi
staðið nokkrar mínútur. Ljósin slokknuðu, húsin
tóku að hrynja og þá gaus eldurinn upp. I3aö voru
einar tvæi’ til þrjár manneskjur, sem sluppu
ómeiddar úr almennings-leikh.úsinu; húsið hrundi,
er stóð á miðri leiksý.ningu.
I Conceplion skemmdist stór höfuðkirkja svo
mjög, að Iiana vei’ður að sprengja af grunni.
Skotnar voru fjórar peisónur, sem voru þar á
fei’ð til rúna.
Tjónið aí landskjálftunum er metið á 1500
millj. pesos. Meðal hinna afmáðu bæja eru: Flor-
ida, Qualqi og Tome. Enginn veit tölu á fjölda
særðra manna.
Eldfjallið Llaima gaus skömmu síðar og olli
gosið úrhellisi’egni, svo að nærri var ómögulegt
að forða fólkinu undan.
Kyrrahafið sr hið mikla jarðskjálftasvœði.
Landskjájftarnir I Chile beina athygli vori i
að heimsins stærsta. jarðskjálftabelti, Kyrrahafs-
ströndinni. Þar hefir hver ógnaraldan rekið aðra
öldum samán. Eftir endilangri ströndinni liggja
eldfjöl), sem valdið hafa feiknalegum landskjálft-
um, er þau hófu gosin. En landskjálftar hafa líka
átt sér stað, þar sem eldfjöllin eru útbrunnin
og kveðið mikið að þeim.
Árið 1724 skall 30 metra há jarðskjálftabylgja
yfir Callao, b.afnarborg Lima, höfuðstaðarins I
Perú, eyddi öllum húsum og drap því sem næst
alla íbúana.
Árið 1906 gengu jarðskjálftar og þar af leiðandi
voðaeldur I San Fransiskó og I Japan hafa jarð-
skjálftar gengið livað eftir annað. Mestur land-
skjálfti varð þar 1923, eyddist þá mikill hluti
af höfuðborginni Tokio og tugir þúsunda manna
fórust. Árið 1935 kom jarðskjálfti á eyjunni For-
mosa og margar þúsundir manna fórust.
Hinu megin Kyrrahafsins er eftirminnilegast-
ur jarðskjálftinn I Kaliforniu 1933. Hann geys-
aði sérstaklega I kringum borgina Los Angeles
og mörg hundruð manna fórust og særöust.
Siðast gengu jarðskjálftar 1932 I Suður-
Ameriku um vorið, kom þá eldur I löngum íjall-
garði I Andesfjöllunum, og þá féll aska yfir borg-
ina Buenes Aires, sem þó er svo fjarri. Stór heruð
eyddust. Arið 1928 gekk jarðskjálfti mikill í Talca-
héraðinu 1 Chile. Þá fórst líka, margt manna.
Ölclungur dönsku konungsœttcirinncir.
Valdimar prins, andaðist á laugardagsmorgun-
inn 14. janúar þ. á. rúmlega áttræður.
Valdiniar var fæddur 27. okt. 1858; var hann
yngsti sonur Kristjáns konungs IX. og Lovísu
drottningar. Hann var því bróðir Friðriks kon-
ungs. áttunda og Georgs fyrsta Giikkjakonungs
og föðurbróðir Kristjáns tlunda og Hákonar sjó-
unda Noregskonungs. Hann var útlærður sjóliðs-
foringi, gekk á sjóliðsskólann 1875, og varð ann-
ar sjóliðsforingi 4 árum seinna. Upp frá þvl hækk-
aði hann I tigninni og varð vara-aðmlráll 1911.
en sagði af sér embætti á þvl sama, ári.
á sínum sjóliðsforingjadögum fékk Valdimar
færi á að sjá meira af heiminum en flestir fræncl-
ur hans. Hann tók þátt I mörgum leiðangrum,
svo sem til Vestur-Indlands 1879- 80, og Austur-
Aslu 1899- 3 900. 1 þeim leiðangri var hann foi-
ingi á herskipinu »ValkyrjanAnnars lifði hann
kyrrlátu llfi, eins og venja er til um hina yngri
meðlimi konungsættar. Boðinn var honum kon-
ungdómur I Búlgaríu 1887, en hann hafnaði því
’boði.
Prins Va.ldimar kvrentist Maríu prinsessu af
Orleans 1885, var hún sonarsonardóttir Lúðvíks
Filips Frakkakonungs. Synir lians allir: Áki, Erik
og Vigge hafa afsalað sér erfðarétti til konung-
dóms I Danmörku og nefna sig Danmerkurprinsa
og greifa aí Rosenborg. Fjórði sonui inn, prins
Axel, varð formaður Austur-Asíu-félagsins eftir
O. A. Andersen, kvæntur Margrétu prinsessu. Og
fimmta barnið er Margrét, gift René, prinsi af
Bourbon-Parma.
Krossinn í Pompei.
Allt aí er verið að grafa upp borgina Pompei,
senr fór I kaf undir öskufalli úr Vesúv-fjalli árið
79 e. Kr. Nýlega hefir þar verið grafið upp hús,
og í því húsi fannst krossmerki greinilega höggv-
ið I einn vegginn. Með því telja menn að fengin
sé sönnun fyrir þvl, að kristindómurinn hafi feng-
ið inngöngu í þá litlu og þó nýbyggðu borg, áö-
ur en hið eyðanda gos kom upp I Vesúv. Visinda-
mennirnir vinna kappsamlega að því, að finna
nýjar fornmenjar undir öskunni.