Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1949, Qupperneq 8

Heimilisblaðið - 01.01.1949, Qupperneq 8
6 HEIMILISBLAÐIÐ Elizabeth Goudg liefur skrifað þessa smásögu. sem gerist á enskri eyju, en þar eru ekki börnin ein um að trúa því «ð œvintýralegir vi'SburSir geti skeb. AÐ var einn þessara dásam- legu daga, þegar maður lætur lieillast af dýrð náttúr- unnar. Jörð, liiminn og haf ljómuðu í þúsund litum. Vind- urinn bærði blöð trjánna og fuglarnir sungu bátt uppi í trjá- krónunum, en báran stundi þungan niðri við bjargið. Þetta var einn þeirra daga, ])egar sá, sem á bát, dregur upp segl og siglir út á bláan sæinn; þegar sá, sem á hest, stekkur á bak og ríður á liarða spretti xit í buskann; ])egar sá, sem á draum, veit, að bann mun verða að veruleika, liversu ótrúlegt sem það kann að virðast. Colin Colbert var átta ára að aldri. Hann átti livorki bát né góðan reiðbest. Aftur á móti átti bann tvo sterklega og sól- brennda fætur og höfuð, sem var fvdlt af ævintýralegum ór- um. Hann var sá fyrsti á lieim- ilinu, sem vaknaði þennan dá- samlega morgun, og lionum var strax ljóst, að nii var einmitt veður til að leggja upp í ævin- týraleiðangur. Hann stakk greiðunni niður í vatnskönnuna og dró hana í gegnum liárið, en liann þvoði það ekki. Það var bara tímasóun. Hann mundi verða jafnóhreinn aftur eftir svolitla stund. Aftur á móti burstaði liann tennurnar, því tannpastað var svo gott á bragð- ið. Síðan fór liann í bláu bux- urnar sínar og peysuna og lædd- ist berfættur með skóna í bend- inni niður gamla, snúna stig- ann. Nú var um að gera að geta opnað útidyraburðina án þess að vekja pabba, mönnnu eða eitthvert systkinanna. Ef ein- hver yrði var við hann, mundi bann verða stöðvaður, þveginn og greiddur á ný, — og þá var allur hinn dásamlegi tími fram að morgunverði glataður. Gamla sveitabýlið, sem var beimili hans, var á lítilli kletta- eyju í ensku sundunum. Það var skemmtilegt, fornfálegt bús, byggt úr traustu, gráu forngrýti og með glæsilegt rautt tígulsteinaþak. Bæjarblaðið var umlukt gripabúsununt á einn veg og þykkum, gömlum stein- vegg á þrjá vegu. Eina leiðin að búsunum var í gegnum sterk- legt blið á eystri steinveggn- um. Þetta var ekki ósvipað virki, enda liafði það einlivern- tíma í fyrndinni verið byggt með það fyrir augurn, að býl- ið gæti mætt áhlaupi frá sjón- um. En nú var búsið friðsam- legt bóndabýli með dúfum á hlaðinu og blómum og vafn- ingsjurtum lijá dyrum og glugg- um. Alls staðar var friðsælt — — og það var frámunalega gremjulegt, fannst Colin, því liver kærði sig um kyrrð og ró? Hann sjálfur þráði bardaga og vopnagný! Hann óskaði þess oft, að bann befði lifað í gamla daga, þegar sjóræningjar lentu á bátum sínum bjá bjargbrún- inni niður við Mávavík. Það voru skemmtilegir tímar! Hann sá þá í huganum koma þjót- andi upp bakkana, en dauð- skelkað bændafólkið leitaði liælis í víggirtum beimkynnum sínurn ásamt kúm, svínum og bænsnum. Colin sjálfur og pabbi bans og mamma mundu liafa staðið vígbúin í garðsbliðinu með rýt- ing í liendi — og jafnvel syst- urnar mundu bafa bjálpað til að verja heimilið með sverðum eða kylfum . . . Enginn af heimafólkinu mundi bafa særzt, en líkin af ræningjunum mundu bafa legið í haugum meðfram steinveggnum. Ó, já. Það var í gamla daga, sem liann befði átt að vera uppi . . . IT'N fyrst bann lifði í dag, en ekki fyrir hundrað árum, varð bann að bjargast við liug- myndaflugið. Og Colin fann brátt vænan lurk, er gat komið í stað bins ágætasta sverðs. Hann hljóp út á bjargbrúnina til að athuga, livort sjóræningj- arnir væru nokkurs staðar í grenndinni. Hann sveiflaði sverðinu — og svo breytti liann því allt í einu í sjónauka. En þótt liann bæri sjónaukann upp að aug- anu og grandskoðaði sjóndeild- arbringinn, gat liann ómögu-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.