Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1949, Síða 28

Heimilisblaðið - 01.01.1949, Síða 28
26 HEIMILISBLAÐIÐ upp á móti því bragði mínu, heyrðist röd(l hrópa innan úr lnisinu: — Skömm er að sjá til þín, Clon! Víktu til hliðar, víktu til Iiliðar, heyrirðu það? Ég er hrædd um, að þér liafið orðið fvrir slysi, lierra minn. Á þessa leið voru móttökurnar í húsi þessu, og þar eð stundin og aðstæðurnar voru liver annarri skuggalegri, minntist ég þeirra æ síðan. Umhverfis anddyrið voru svalir meðfram veggjunum, og ljósið virtist verða að engu vegna þess, live liátt var til lofts og veggirnir dökkir. Mér fannst allt þetta því líkast, sem ég væri staddur í geysistórum hellismunna, og þjónninn með kirkju- garðsandlitið væri forynja. Hið eina, sem unnið gat bug á þessari tilfinningu, var röddin, sem ávarpaði mig. Ég sneri mér skjálf- andi á beinunum í áttina til hennar, og er ég skyggði hönd fyrir auga, gat ég greint kvenmann, sem stóð undir svölunum. Við hlið hennar sá ég djarfa fyrir manni, sem ég áleit, að væri þjónninn, sem ég hafði séð í veitingaliúsinu um kvöldið. Ég þagði og lineigði mig. Tennurnar nötruðu í munni mér. Ég var máttfarinn og þurfti ekki að látast vera aumari en ég var, og rödd konu þessarar vakti hjá mér einhverskonar hræðslu, sem ekki var auðvelt að gera sér grein fyrir af liverju stafaði. -— Einn inanna okkar liefur sagt mér frá yður, hélt konan áfram utan úr myrkrinu. Það var leiðinlegt, að allt þetta skyldi þurfa að koma fyrir yður, en ég er hrædd um, að þér hafði verið ógætinn í orðum. — Þetta er allt sjálfum mér að kenna, frú, sagði ég auðmjúkur. Ég bið aðeins um liúsaskjól í nótt. — Sú stund er enn ekki upprunnin, að við getum ekki veitt vinum okkar það! svaraði hún með tiginmannlegri kurteisi. Eigi slíkt eftir að ske, herra minn, munum við sjálf vera orðin heimilislaus. Það fór um mig lirollur, og ég forðaðist eins og heitan eldinn að horfa á liana, því, ef satt skal segja,'hafði ég ekki gert mér það nógu ljóst áður, með hvaða hætti þangaðkomu mína mundi bera að höndum — ég hafði ekki gert mér grein fyrir smáatrið- unum, og nú, þegar athafnastundin var upprunnin, var andstyggi- leiki þessa auðvirðilega starfs mér næstum því ofraun. Mér hafði alltaf getizt illa að starfi þessu frá uppliafi, en ég átti einskis úrkostar þá og ég átti einskis úrkostar nú. Sem betur fór duldi þreytan og sársaukinn svip minn, annars mundi ég strax hafa vakið grun, því hafi nokkur maður nokkurntíma verið skömmustulegur eins og hundur, eða liafi Gil de Berault nokk- urntíma fundizt liann leggjast svívirðilega lágt, þá var það í þetta sinn og á þessum stað -— á dyraþröskuldi frú de Coche- forét, hlýðandi á alúðleg móttökuorð liennar. Þó held ég, að einn maður hafi grunað mig. Dyravörðurinn Clon hélt dyrunum ennþá þrjózkulega í hálfa gátt og horfði á mig með fjandsamlegu glotti sínu, þangað til liúsmóðir lians skip- alla þá gleði, alla þá lirifningu, sem mér hefur hlotnazt af því að virða fyrir mér verk handa þinna. Sjá, nú hef ég lagt síð- ustu hönd á þessa bók, sem felur í sér árangurinn af iðju minni. Yið samningu þessarar bókar hef ég beitt allri þeirri greind, sem þú liefur gefið mér. Ég hef hirt mönnum allan mik- illeik verka þinna, og ég lief skýrt fyrir þeim vitnisburðina um þau, að svo miklu leyti sem minn takmarkaði andi liefur leyft mér að ná yfir óendanleik þeirra. Ég hef leitast við að lyfta mér upp til sannleikans eftir braut mannlegrar hugsun- ar. Og ef ég, aumur jarðarmaðk- ur, getinn og alinn upp í synd- inni, kynni að hafa sagt eitt- livað, sem ekki er þér samboðið, ó, þá sýn mér það, til þess að ég geti afrnáð það. Hef ég ekki látið heillast af ginningu sjálfs- þóttans með því að virða fyrir mér hina undursamlegu fegurð verka þinna? Hef ég ekki haft frægð mína fyrir augum, þegar ég reisti þennan minnisvarða, sem ætti þó eingöngu að vera vígður þér til dýrðar? Ó, ef svo væri, þá vertu mér mildur og miskunnsamur faðir, og unn mér þeirrar náðar, að þetta rit, sem ég hef nú nýlega lagt síð- ustu liönd á, megi ávallt vera vanmáttugt til að leiða illt af sér, en megi þar á móti efla dýrð þína, og verða til sálu- bótar. LJngi maSurinn: Dóttir yðar segist gjarna vilja verða konan mín. FaSirinn: Þér megið sjálfum yður um kenna. Þér hafið hangið hér eins og grár köttur á hverju kvöldi að undanförnu.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.