Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1949, Qupperneq 35

Heimilisblaðið - 01.01.1949, Qupperneq 35
HEIMILISBLAÐIÐ 33 — Vesalings maðurinn! Þér liafið ekki lieyrt sögu lians? sagði frúin. — Ég lief heyrt nokkuð af henni, svaraði ég. Louis sagði mér það. — Ég verð að viðurkenna, að mig hryllir stundum við hon- um, svaraði hún lágum rórni. Hann liefur þjáðst — hræðilega mikið, og það fyrir okkur. En ég vildi, að iiann hefði ekki ein- mitt orðið fyrir þessu við slíkan og þvílíkan starfa. Njósnarar eru nauðsynlegir, en maður vill lielzt ekki þurfa að umgangast þá. Allt, sem á eittlivað skylt við svik, er svo hræðilegt. Fijótur, Louis! iirópaði ungfrúin, komdu með koníak, ef það er tii! Ég er viss um, að þér eruð — ennþá veikur, herra minn. — Nei, þakka yður fyrir, tautaði ég liásri röddu, og reyndi eftir fremsta megni að ná stjórn á mér aftur. Ég er alveg heil- brigður. Þetta var — gamalt sár, sem ég finn stundum til í. 4. kafli. Frú og ungfrú. p|N svo að engu sé leynt, var það ekki gamalt sár, sem olli mér slíkum sársauka, heldur orð frúarinnar. Þegar Clon vakti athygli mína á sér í garðinum þá fyrir skömmu, hafði gamla liarkan bvrjað að ná tökum á mér, og nú höfðu orð frú- arinnar hneppt mig að fullu í gömlu brynjuna. Ég sá nú, með heiskju í liuga, það sem mér hafði kannske gleymzt um stund, hversu mikið liyhlýpi var staðfest milli mín og þessara kvenna, hversu ólík sjónarmið okkar, réynsla og markmið voru. Ég hæddist með sjálfum mér að hinum fínu tilfinningum þeirra — eða hélt að ég gerði það — en engu minna dár dró ég að heimsku sjálfs mín, að ég skyldi láta mig dreyma, þótt ekki væri nema augnablik, að ég gæti, kominn á minn aldur, snúið aftur — snúið aftur, og lagt allt í liættu fyrir duttlunga, hik eða töfra einnar einverustundar. Ég þykist þess fullviss, að eittlivað þessu líkt hafi mátt ráða af svip mínum, því þegar frúin leit á mig, sá ég bregða fyrir vandræðaglampa í augum hennar, og ungfrúin fjasaði í liálfgerðu Liti um hitt og þetta. Ég ímyndaði mér að minnsta kosti, að þessu væri þann veg farið, og ég flýtti mér að stilla mig aftur, og konurnar tvær gleymdu hrátt, eða virtust gleyma, ])essu at- viki, og liugsuðu urn það eitt, að halda að mér hinum fábreyttu en ljúffengu réttum, sem bornir voru á borð. Framhald. S K R I T L U R -— Hvers vegna nota Kínverjar hvít axlabönd? -— Það veit ég ekki. — Þeir gera það til að halda hux- unum upp um sig. — Einmitt það, en veiztu, hvers vegna Japanar nota svört axlabönd? — Já, þeir nota þau sennilegu lika lil að Iialda huxunum upp um sig. — Nei, þeir nota þau til að missa ekki buxurnar niður um sig. Vinur niinn einn sótti skó konu sinnar í viðgerð. Hann fékk ekkert hréf utan um skóna hjá skósmiðn- unt, svo að hann varð að hera þá lausa í hendinni, þótt hunn kæmi sér varla að því. A heimleiðinni sat maður andspænis honum í strætis- vagninum og einblíndi á hann. Þegar vinur minn fór út úr vagninum, sagði ínaðurinn: — Þú ætlar ekki aldeilis að láta liana elta þig, karlinn! Maður nokkur átti selló með ein- um streng, sem hann lék á klukku- stundum saman og liélt þá fingrin- um alltaf á sama staðnum. Mánuð eftir mánuð varð kona hans að hlusta á þennan sárgrætilega hávaða. Að lokum sagði hún í örvæntingu sinni: — Heyrðu, ég hef tekið eftir því, að á öðrum sellóum eru fjórir strengir og þeir senx leika á þau, eru á sí- felldri hreyfingu með fingurna. Maðurinn hætti að leika rétt sem snöggvast og sagði óþolinmóður: — Auðvitað hafa hinir fjóra strengi á þeim og eru á sífelldri hreyfingu með fingurna. Þeir eru að leita að rétta staðnum, en þann stað hef ég þegar fundið! LiSþjálfinn: Hvað gengur að þess- um nýliða? HermaSurinn: Hann er veikur. LiSþjáljinn: Hann er ekkert veik- ur, liann heldur hara að hann sé það. Skömmu síðar.---------- LiSþjáljinn: Hvernig líður nýlið- anum, sem hélt að liann væri veikur? HermaSurinn: Nú heldur ltann, að hann sé dauður.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.