Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Síða 7

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Síða 7
HEIMILISBLAÐIÐ 42. árgangur, 1.—2. tölublaö — Reykjavík, janúur—jebrúar 1953 Stanley Frank NÝJAR LEIÐIR I AMERlSKRI KVIKMYNDAFRAMLEIÐSLU \ síðustu árum hafa mörg hundruð kvikmyndahúsa- eigendur í Bandaríkjunum byggt ný kvikmyndahús eða hresst upp á hin gömlu og ekki hirt hið minnsta um þá svartsýnisspádóma, að kvik- myndaframleiðslan sé feig. Og þeir hafa jafnvel gengið svo langt að taka upp nýja háttu og sýna aðeins ,,góðar“ mynd- ir. Þeir skeyta ekki hætis hót um hinn harða dóm H. L. Menckens, að enginn hafi nokkru sinni tapað á því ,,að álíta smekk amerískra kvik- myndahúsgesta lélegri en ástæða væri til að ætla“. Fólk, sem við kvikmynda- starfsemi fæst, kallar þessi kvikmyndahús ,,lista“-hús eða ,,sure-seaters“, en það merkir kvikmyndahús, sem hafa sýn- ingar á vissum tímum með tölusettum sætum. Kvik- myndahús þessi sýna þær nýj- Ungar, sem mestar vonir eru við tengdar á sviði kvikmynd- anna, síðan loftnet sjónvarps- stöðvanna hófu að varpa skuggum sínum á landið. Kvikmyndahús þessarar teg- undar eru lítil, rúma 300 til 750 gesti í sæti og hafa gert að sérgrein sinni alvarlegar útlendar og amerískar mynd- ir, sem listagildi hafa. Spéfuglar í Hollywood héldu því fram, að kvikmyndahúsum þessum hefði verið valin nafn- giftin ,,sure-seaters“ af því, að fólk gæti alltaf gengið að því vísu, að þar væri nóg af auð- um sætum. En þetta spaug hefur orðið sér til skammar, því að í þessum kvikmynda- húsum er alltaf hvert einasta sæti skipað. Nú eru til í Bandaríkjunum 450 kvikmyndahús af þessu tagi, og það er um það bil helmingi hærri tala en fyrir tveim árum. Við þetta bæt- ist, að 1500 önnur kvikmynda- hús leitast jafnan við að sýna myndir, sem meira listagildi hafi en hinn venjulegi mynda- sægur, sem Hollywood send- ir frá sér. Þessi nýja hreyf- ing snertir aðeins lítinn hluta kvikmyndahúsa landsins, sem eru 19 000 að tölu, eða um það bil einn tuttugasta hluta, en hreyfingin er í vexti og er farin að hafa áhrif á hinar venjubundnu skoðanir kvik- Silvana Mangano fór með aðalhlutverkiö í myndinni „Beisk uppskera“.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.