Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Blaðsíða 36

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Blaðsíða 36
Dœgradvöl barmnna ^fu!,§!n O , j. , . *, i dimmu næturmnar, ao pau virðast vera að hrapa yfir okkur. Nes og tangar reka nef sín út úr myrkrinu, horfa á okkur sínum steindu augum, þursaleg og þögul. Loks náðum við heim. Það var farið að elda aftur og það grámataði fyrir degi í austr- inu, köldum haustdegi. Það voru þöglir og drumbs- legir menn, sem þrömmuðu heim í verbúðina. Það var dásamlegtað teygja úr sér undir hrjúfu brekán- inu, finna svefninn lykjast um sig, hægt, hægt eins og mjúk- an faðm. Maður heyrir og sér það sem fram fer eins og fjar- lægan óm. Karlinn var eitt- hvað að gaufa frammi. Svo kemur hann inn, gengur að fletinu, þrífur loftvogina af naglanum og gengur út. Það kveður við brothljóð úti á tröðinni. Svo er allt hljótt. Hann kemur inn aftur tóm- hentur og þungbúinn, gengur að rúminu og háttar. Nokkra stund tuðar hann við sjálfan sig; síðan byrjar hann að hrjóta. Leiðréttingar. í 9.—10. tbl. 1951 birtust vísur eftir Þ. K. í einni vísunni, Hlégarð- ur við Brúarland, var leiðinleg prentvilla, sem höfundur er beð- inn velvirðingar á. Vísa þessi er því birt hér aftur: Sárt er þegar fjólan frýs, fögnum kærleiksbandi. Hlégarður einn hærra rís til heilla Brúarlandi. í síðasta tölublaði, í ljóðinu Rétt úr þér, hefur slæðzt inn villa í 6. erindi, fyrstu línu. Hún á að vera þannig: Þá fagnar Guðs himinn, þá fagnar Guðs jörð Lárétt: 1. Blóma, 4. fisk- urinn, 8. álegg, 10. ríki, 11. tötrarnir, 12. minnkar, 15. vindátt, 18. hátíð, 19. blekking, 20. gjörðin, 21. fremri. Lóðrétt: 1. Dauðyfli, 2. reykja, 3. eyja við Ítalíu, 5. átt, 6. flýti, 7. nag, 9. sólarupp- rás, 13. hafrót, 14. karlmannsnafn, 16. verkfæri, 17. dropi. Nafnagáta. Hálft er nafn á himnum uppi, en hálft er niðri í eldastó. (Karl- mannsnafn). Reikningsþraut. Talnamynd. Heimili Péturs Heimili 800 m. óla Pétur og Óli eru sam- ferða úr skóla. Pétur fylgir Óla, áður en hann fer heim til sín. Eitt sinn, er þeir eru komnir hálfa leið heim til Óla, uppgötvar Pét- ur, að hann hefur gleymt landabréfinu sínu í skólanum; hann hleypur aftur til að ná í það. Þegar báðir drengirnir eru komnir heim til Óla, fylgir Óli Pétri heim, og þegar þeir eru komnir heim til Péturs, fylgir Pétur Óla hálfa leið að heim- ili hans. Hversu marga metra hafa drengirnir geng- ið, hvor fyrir sig, þegar þeir koma heim til sín ? 'ff Skóli LAUSN á dægradvölum í síðasta blaði. Krossgátan. Lárétt: 1. Hirðar, 5. jól, 6. fíl, 8. öl, 9. nút 11. ný, 12. kátt, 14. urg, 16. ári, 18. ló, 19. má, 20. án, 22. fórn, 24. sr., 25. ef, 27. Akureyri, 29. Róm, 30. tel, 31. Itatiaya. Lóðrétt: 1. Hól, 2. il, 3. af, 4. Rín, 5. jökull, 7. lýsing, 9. ná, 10. út, 12. kg., 13. tá, 15. ró, 17. ká, 19. mó, 20. ár, 22. fruma, 23. neyta, 24. skot, 26. Frey, 27. Ari, 28. ila. Talnamyndin: 50. [32] HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.