Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Blaðsíða 24

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Blaðsíða 24
Gamli maðurinn staulast upp þrekkurnar innan við innsta dragið. Dalmann HUGLJOMUN GLAUS dalurinn endar uppi við fjallgarðana, með háu jökultindana, þar sem fyrstu dropar elfarinnar komu endur fyrir löngu upp undan snæröndinni, en eru nú sokkn- ir til botns í hafinu fyrir utan ströndina. Gljúfraþrengslin geyma dularfulla skugga þar uppi og snúast þeir kringum nípur og dranga á flótta undan geislum sólarinnar. Stundum dettur einmanalegur klettur um sjálfan sig og hrynur fram af næstu brík með dunum og dynkjum, sem bergmálið flyt- ur langt niður í dal. Skugga- hópurinn flýr í ósköpum, sum- ir elta brotin úr klettinum nið- ur eftir öllum giljum og hlíð- um og hlaupa á bak við hrísl- ur í skóginum, en aðrir stingast kollhnís ofan í burknaholur. Ymur lækjanna í fjallahlíð- unum er þrunginn fomeskju- legum blæ. Stórir fossar syngja tröllsagnakvæði, en litlu, blá- ustu lindirnar hvísla álfaljóð- um. Og hrísrunnarnir hlusta á. Hnjúkaþeyr fer um og hrist- ir á þeim laufið. Fiðrildi rjúka upp með andfælum. Stór, sterkur fjallavalur þeytist gegnum loftið, myndar hvirfil- byl í fiðrildahópnum og hverf- ur svo upp í hamrastallana. Niðri á milli hólanna undir hnjúkahlíðunum stendur bær- inn, — grænar torfhvelfingar yfir grjótveggjunum. Gráblár hvolpur með glettni í smáum augum situr uppi á þakinu og horfir á gamlan kött. Ef til vill verður eltingaleikur, sem svarar kostnaði. Veðrið er gott. Kötturinn bröndóttur. Hann kúrir undir skarnkvörninni þarna á veggbrúninni, tilbúinn að rífa. En honum skal nú ekki verða kápan úr því klæð- inu. Árni gamli í Grýtu kemur lotinn út úr bæjardyrunum og styðst við þriggja álna langan broddstaf. Hann kallar á hvolp- inn, og kötturinn verður hýr í augum og hárafari, þegar hin- ir tveir hverfa út fyrir tún- garðinn. Það er veiðivor í daln- um. Aldrei hafa jafnmargir fuglar verið á flögri og nú eða veðrin jafn blíð. Ekki þarf nema læðast niður ^ í túnfótinn, til þess að verða umkringdur af gargandi öndum, sem eiga unga að verja. Og há- vaxið töðugresið með glóandi sóleyjastjörnum hér og þar skýlir vel hinu smávaxna tígr- isdýri. Gamli maðurinn stefnir inn dalinn og fer hægt. Ofurlitið bros færist yfir andlit hans, þegar hvolpurinn fer að elta spóana í götuslóðanum. Lang- nefirnir halla sér áfram og trítla ákaft og létt nokkra stund, þangað til héppinn er nærri kominn, þá rjúka þeir upp með ósköpum. Svo byrj- ar leikurinn á því sama aftur. Dettur mér í hug, að gaman væri að láta eldgos skella á, meðan þeir eru að paufast þarna eftir dalnum. Fyrst kem- ur jarðskjálfti og spóarnir fá ónot í stélin og þjóta eins og byssubrenndir út í bláinn. Hvolpurinn hleypur ýlfrandi til Árna gamla, sem styður sig við broddstafinn og æðrast ei hót. Eldgígurinn er uppi á fjall- [20] HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.