Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Blaðsíða 9

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Blaðsíða 9
til Music Hall. En nú er hvorki þetta kvikmyndahús né önnur risakvikmyndahús leng- ur annað eins keppikefli þeirra og áður var, heldur vilja þeir frekar koma myndum sínum í kvikmyndahús, sem ekki eru nema tíundi hluti hinna að stærð. Og hvers vegna? Jú, það hefur komið á daginn, að tekjurnar af þeim verða hærri með tímanum. Það er ekki á meðfæri fá- tæklinga, að hefja sýningar á stórmynd í einhverju þessara risastóru kvikmyndahúsa ame- rísku borganna. Leigan, aug- lýsingarnar og útbreiðslu- starfsemin kosta aldrei minna en 7 000 dollara, og útgjöldin geta jafnvel komizt upp í 40 000 dollara fyrir frumsýn- mgu á Broadway, ef kvik- myndafélagið ætlar sér um leið að vekja athygli lands- lýðsins á myndinni. Ef kvik- myndahúsið er innan vébanda ,,hrings“ kvikmyndahúsa, svo sem er um flest frumsýninga- kvikmyndahús, þá krefjast hin kvikmyndahúsin einnig 7 000 dollara leigu á viku, áður en þau taka myndina til sýninga. Myndin er sýnd í eina viku, i mesta lagi tvær, og síðan verður aftur að taka til við hið kostnaðarsama og erfiða starf að koma henni víðar til sýninga. En ef um ,,lista“hús er að ræða, er kostnaðarhliðin mikl- um mun lægri. Ekki þarf á stórkostlegum auglýsingaher- ferðum að halda, því að kvik- myndahúsið hefur fastan hóp sýningargesta og hefur auk þess ekki skilyrði til að taka a móti fjölmennum hópi gesta í einu. Það þykja mikil útgjöld hjá slíku kvikmyndahúsi, ef syningarkostnaður nýrrar myndar er 4 000 dollarar. En það er þó mikilvægast, að HEIMILISBLAÐIÐ Laurerice Olivier sem Hamlet í samnefndri kvikmynd. [5] mynd, þeim mim ódýrara verður að sýna hana. Það verða meiri tekjur af mynd, sem skilar 6 000 dollara tekj- um á viku í „lista“-húsi og skilar 2 000 dollurum á viku er frá líður, heldur en mynd, sem hefur göngu sína með 20 000 dollara tekjum í eina viku í stóru kvikmyndahúsi, en er að þeirri viku liðinni tekin af sýningarskránni. Kvikmyndaf élögin haf a aldr- ei hagnýtt sér ,,lista“-húsin svo sem þó væri hægt, segir Max Youngstein, auglýsinga- stjóri United Artists. Flest fé- lögin halda ennþá fast við þessi útgjöld jafnast niður með nokkrum hundruðum dollara á viku til blaðaaug- lýsinga, og þá fyrst, þegar myndin hefur verið tekin til sýningar. Sjálfstæður eigandi slíks kvikmyndahúss getur greitt umboðsmanninum háar prósentur af tekjunum vegna þess, að húsnæði hans er ódýrt og útgjöldin lág, og venjulega hefur hann greitt öll sín gjöld, þegar fyrsta sýn- ingarvikan er liðin. Það er hagnaður ,,lista“-hús- anna, að þau geta sýnt hverja mynd mjög lengi. Því lengri tíma, sem hægt er að sýna

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.