Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Qupperneq 12

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Qupperneq 12
— Þú ert þá loksins búin að kynnast þeim. — Ja, mér fannst það blátt áfram heimskulegt, að við skyldum vera í sambýli og baða okkur á sömu strönd- inni daglega, án þess að talast við. Þau hafa lofað að koma og snæða með okkur hádegis- verð. Mig langaði til að þú hittir þau, svo að ég gæti heyrt, hvað þér tekst að hafa upp úr þeim. Hún sneri sér að Landon. Ég vona, að þér hafið ekkert á móti þessu. En hann var ennþá í Ijóm- andi skapi. — Ungfrú Gray, það er mér sönn ánægja að kynnast vinum yðar, sagði hann. — En þau eru ekki vinir mínir. Ég hef séð þau oft og mörgum sinnum, en ég hef aldrei talað við þau fyrr en í gær. Það verður ekki svo lítill viðburður fyrir þau að hitta hér bæði rithöfund og frægan lögfræðing — — —. Síðastliðnar þrjár vikur hafði ungfrú Gray sagt mér ým- islegt af bessum Craigshjónum. Þau höfðu tekið á leigu vill- una við hliðina á hennar húsi. 1 fyrstu hafði hún verið hrædd um, að bau mundu valda henni 'óþægindum eða trufla ró hennar. Hún komst samt fljótt að raun um það, að þau höfðu jafnvel ennþá minni löngun til að kynnast henni en hún þeim. Þrátt fyrir það, að þau kæmust ekki hjá að mæta henni -nokkrum sinnum á dag, var ómögulegt að sjá það á svip þeirra, að þau hefðu nokkurntíma séð hana áður. Ungfrú Gray sagðist vera mjög þakklát fyrir, að þau skyldu ekki reyna að troðast inn á hennar landareign. Mig grunáði samt, að henni fynd- ist það dálítið leiðinlegt, að þau sýndu það svo greinilega, að þau hefðu ekkert meiri áhuga á að kynnast henni en hún þeim. Dag nokkurn, þegar við vor- um á síbmmtigöngu, vildi svo til að við mættum þeim, og fékk ég tækifæri til að at- huga þau gaumgæfilega. Craig var myndarlegur maður með rauðbirkið, opinskátt andlit, grátt yfij-skegg og þykkt, gróft, grátt hár. Hann kunni vel að klæða sig, og það var eitthvað djarfmannlegt og við- felldið við hann. Mér varð ósjálfrátt hugsað til sátta- semjara, sem hefur hætt störf- um með drjúgan skilding i bakvasanum. Konan hans — kona með hörkulegt andlit — var vöðvamikil og hávaxin. Hún var með leiðinlega ljóst hár, stóran munn og ljótar tennur. Hún var meira en venjuleg — hún var blátt áfram ljót. Fötin, sem ber- sýnilega voru mjög dýr, voru strengd utan á henni, þau mundu hafa klætt átta ára barn betur en hana. Frú Craig var um fertugt. Hann leit al- mennilega út, en hún verkaði óbægilega á mig. Ég sagði við ungfrú Gray, að mér fyndist bað mikið lán fyrir hana, hvað bau sýndu greinilega, að bau óskuðu ekki eítir félags- skap annarra. — Það er bó eitt gott við bau, anzaði hún. — Hvað er það svo sem? — Þau elska hvort annað, og þau siá ekki sólina fyrir barninu sínu. Þau áttu aðeins eit.t barn, um það bil ársgamalt, þess vegna áleit ungfrú Gray, að það væri stutt síðan þau gift- ust. Hún hafði mikla ánægiu af því að sitia og horfa á bau með barnið. Á hverjum morgni ók barnfóstran beim litla fram og aftur, en áður [8] höfðu foreldrarnir með sýni- legri hrifningu verið að kenna honum að ganga. Þau stóðu hvort á móti öðru með tvö til þrjú skref á milli sín, og tældu þann litla til að fara frá einu til annars, og i hvert skipti, sem hann hrasaði og valt um koll, þá gripu þau hann upp og föðmuðu hann og kysstu. Að lokum, þegar þau settu hann upp í vagninn, stóðu þau yfir honum í lengri tíma og þvöðruðu við hann á óskilj- anlegu barnamáli. Og þegar barnfóstran ók af stað, stóðu þau og gláptu á eftir honum, eins og þau gætu ómögulega slitið sig frá honum. Ég vissi enga ástæðu til þess, að ungfrú Gray hafði aldrei gifzt. En ég var, eins og dómarinn, alveg sannfærð- uv um, að hún hefði haft ótal tækifæri til þess. Þegar hún sagði mér frá Craigshjónun- um, datt mér ósjálfrátt í hug, hvort hún fengi ekki sting fyr- ir hiartað, þegar hún sæi alla þessa hjónabandssælu. Ég held. að fullkomin hamingja sé mjög sjaldgæf í heiminum, en þessar tvær manneskjur virtust hafa fundið hana. Það ev ekki ósennilegt, að hinn mikli áhugi ungfrú Grays fyr- ir Craigshiónunum hafi stafað af bví, að hún gat ekki bælt niður bá tilfinningu í hjarta sínu, að hún hefði glatað ein- hverju, sem ekki yrði bætt, við að pipra. Eftir að hún hafði grafið upp skírnarnöfn þeirra, kall- aði hún þau aldrei annað en Edwin og Angelinu, og samdi langa sögu um þau. Hún sagði mér alla söguna, og þegar ég gerði gys að henni fyrir hana, bá lá við að hún móðgaðist við mig. Það sem ég man úr sögunni var á þessa lund: Þau höfðu elskað hvort annað fyr- HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.