Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Síða 21

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Síða 21
verð að finna upp eitthvað annað — ég gæti ef til vill látið renna vatn alla nóttina. Við settumst bæði og störð- um á Emmu. Það var graf- kyrrð í herberginu, nema há- vær andardráttur Feelys. — Hættir hundurinn aldrei þessum hávaða? spurði ég ergilegur. — Hann er að tala, útskýrði Emma. Hann talar alltaf, en ég skal hafa hann í herberg- inu mínu, og þá ónáðar hann ykkur ekki. — Gerir hann yður aldrei onæði með þessum látum? spurði ég. . — Hann mundi gera það á nóttunni, ef ég léti ekki raf- magnsviftuna ganga alla nótt- ina, sagði Emma. Það heyr- 'st ekki svo mikið í honum, þegar viftan er í gangi, af því að hann hrýtur ekki. Viftan gerir að nokkru leyti það gagn, að ég veiti honum enga nthygli. Ég set aðeins pappa- spiald þar sem viftan slæst í það, og þá veiti ég Feely miög litla eftirtekt. Ef til vill Set ég látið vatn renna alla nóttina í stað þess að hafa viftuna í gangi. — Hm, sagði ég, stóð upp °g blandaði í glös handa mér °g konu minni. Við höfðum ákveðið að drekka ekki, fyrr en við værum komin um borð, en mér fannst við hafa þörf fvrir það núna. Við sögðum Emmu ekki frá því, að það vvði ekki rennandi vatn í her- bergi hennar í Vineyard. — Emma. við vorum orðin hrædd um vður, sagði ég. Ég s’maði til herbergis yðar, en þér svöruðuð ekki. — Ég svara aldrei í síma, vegna bess að ég er slöpp á taup-um og gæti fengið tauga- afall við bað. Annars var ég þar ekki. Ég get ekki sofið heimilisblaðið í herbergi, þar sem sími er. Ég fór heim til frú McKoy við Sjötugasta og áttunda stræti, svaraði Emma. Ég færði gleraugun neðar á nefið. — Fóruð þér yfir í Sjö- tugasta og áttunda stræti i gærkvöldi? spurði ég hvasst. — Já, herra, sagði hún. Ég varð að segja frú McKoy frá því, að ég væri á förum úr borginni og myndi ekki köma þangað í nokkrar vikur — Frú McKoy er veitingakona. Þar að auki sef ég aldrei á gistihúsi. Hún skimaði ótta- slegin í kringum sig í herberg- inu og sagði síðan hikandi. Þau geta brunnið. Ijað kom í ljós, að Emma *■ hafði ekki aðeins farið yfir í Sjötugasta og áttunda stræti, heldur hafði hún gengið alla leiðina og borið Feely. Það hlaut að hafa tekið hana nærri tvo tíma að ganga þangað, því að Feely þoldi ekki að vera borinn langan spöl í einu, svo að hún þurfti að leggja hann á gangstéttina og hvíla hann dálitla stund — nærri því við hvert hús. Og það hafði tekið hana iafnlangan tíma að kom- a~t aftur til veitingahússins. Þegar við spurðum Emmu að því, hvers vegna hún kæmi svona seint, kom það í ljós, að Feely vaknaði aldrei fyrr en eftir hádegi. Emma gat því ekki komið fyrr. Henni fannst þetta ákaflega leiðinlegt. Kona mín og ég lukum úr glösun- um. Við litum ýmist hvort á annað eða á Feely. Emma harðneitaði að fara með bíl niður á Fjórtándu bryggju. og við urðum að tala um fyrir henni í tíu mínútur, áður en hún féllst á að fara með honum. — Látið hann aka varlega, [17]. stundi hún. Við höfðum næg- an tíma, svo að ég bað bíl- stjórann að aka hægt. Emma reyndi að standa á fætur, en ég ýtti henni í sætið aftur. Emma kjökraði: — Ég hef aldrei komið í bíl áður. Hann ekur hræðilega hratt. Við og við gaf hún frá sér angistarfullar stunur. Bílstjór- inn sneri sér brosandi í sæt- inu og sagði: — Frú, yður er alveg óhætt í bíl hjá mér. Feely urraði, en Emma beið, þangað til hann sneri sér aft- ur. Þá hallaði hún sér að konu minni og hvíslaði: — Þeir eru allir kókainistar. Nú gaf Feely frá sér alveg nýtt hljóð — hátt, þjáningarfullt gjamm. — Hann er að syngja, sagði Emma og skríkti einkennilega, en það sást engin svipbreyt- ing á andliti hennar. — Þú hefðir átt að setja viskýið, þar sem við gátum náð í það, sagði kona mín. Þó að Emma Inch væri hrædd í bílnum, þá var það smámunir í samanburði við hræðslu hennar við Priscilla, áætlunarbátinn á Fall River. — Ég get ekki farið með hon- um, stundi hún. Ég get ekki farið upp i hann. Ég vissi ekki, að hann væri svona stór. Hún stóð eins og negld við hafn- argarðinn og þrýsti Feely að sér. Hún hlýtur að hafa tekið fast utan um hann, því að hann veinaði — hann grét eins og kona. — Það eru eyrun, sagði Emma. Hann finnur til í eyr-. unum. Að lokum komum við henni um borð í bátinn og inn í sal- inn. Ótti hennar byrjaði að- eins að dvína. Þá kvað við blástur frá eimpípu skipsins yfir höfnina. Emma Inch stökk á fætur og hljóp af stað. Hún skildi eftir ferðatöskuna, sem

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.