Heimilisblaðið - 01.01.1953, Side 23
um bezt við að ganga. Ég stóð
grafkyrr og glápti á hana.
Þegar ég kom aftur upp á
þilfar, var báturinn að leggja
af stað til Vineyard. — Hvað
er nú á seyði? spurði kona
mín. Ég benti henni upp á
bryggjuna. Emma Inch stóð
þar með ferðatöskuna fyrir
framan sig. Hún hafði Feely
undir öðrum handleggnum, en
með hinum veifaði hún til
okkar. Ég -hafði aldrei séð
hana brosa áður, en nú brosti
hún.
Námfúsi drengurinn.
í New Wonderful Magazine
(London 1623) er frá því sagt, að
1609 hafi fæðzt stúlkubarn í Arl-
ington með þrjú augu. Tvö augn-
anna voru á eðlilegum stað, „en
það þriðja var fyrir ofan nefið á
miðju enninu". Litur augnanna
þriggja var mismunandi, eitt var
blátt, annað brúnt og hið þriðja
grátt . . . í sama riti er sagt frá
því, að ,,í British Museum hefur
nýlega verið settur í spíritus barns-
líkami með þrjú augu. Barnslíkami
þessi er úr safni Sir Hans Sloans,
sem er nýlega dáinn“.
þegar í stað. Heyrzt hefur um fólk,
sem ekki hefur haft þann eigin-
leika að geta snúið sjónmyndinni
við og sér þess vegna allt öfugt.
—o—
Börn Eskimóa borða hrá fisk-
augu, og þau kingja þeim af mik-
illi velþóknun.
Margir heimskautafarar hafa sagt
frá þessu eins og hverri annarri
hjátrú frumstæðrar þjóðar. Nú hef-
ur komið í ljós, að það, sem álitið
er barnaleg hjátrú, hefur verið
sannað vísindalega. í tilraunastöð
í Rochester í Bandaríkjunum voru
gerðar tilraunir með glerhlaup úr
þorskaugum og reyndist það skerpa
sjónina hjá sjóndöpru fólki . . .
í „náttúrusögu" sinni, sem skrif-
uð var árið 77 e. Kr., kom Plinius
með eftirfarandi góð ráð við sviða
í augum: Bindið saman tvo fingur
eða tvær tær eða berið á augun
fótaþvottavatn þrisvar sinnum. —
Annar samtíma læknir ráðlagði
fólki krókódílablóð til að fá betri
sjón.
Munnmæli herma að í byrjun
átjándu aldar hafi maður átt heima
á Spáni, er hafði svo góða sjón, að
hann sá yfir Gíbraltarsund yfir til
Afríkustrandar, þegar hann stóð
uppi á fjallstindi á strönd Spánar.
Hann sá greinilega það sem fram
fór í frönsku höfnunum, og gat
þess vegna aðvarað spönsk skip
við márískum sjóræningjum.
Á stríðsárunum fengu amerískir
hermenn sérstök gleraugu, sem
kölluð voru „Snooperscope", og sáu
þeir það vel með þeim, að þeir
gátu miðað og skotið í niða myrkri
með hjálp ósýnilegra geisla.
Það eru ekki nema rúm þrjátíu
ár síðan aðeins fáir menn í heim-
inum þekktu leyndardóm gleraug-
ans. Uppfinning þessi var gerð
af glerblásara í Leipzig fyrir eitt
hundrað og fimmtíu árum, . en
leyndarmálinu var haldið leyndu í
fjölskyldu hans í fjóra ættliði. í
dag getur hver og einn keypt sér
glerauga svo að segja strax. —
Ástralskur leikari notaði sérstakt
blóðhlaupið glerauga, þegar hann
fór í drykkjuveizlur.
Þegar Kínverji mætir kunningja
sinum, tekur hann ekki ofan hatt-
inn, heldur tekur hann af sér gler-
augun. Gleraugun eru tákn um
aldur, og samkvæmt kínverskri sið-
venju skal bera virðingu fyrir hær-
um. En með kveðju sinni gefur
hann til kynna, að ekki skuli ein-
vörðungu taka tillit tii aldurs hans.
—o—
í Kína í gamla daga höfðu að-
eins háttsettir mandarínar leyfi til
þess að bera gleraugu sem tákn
um virðuleika sinn. Umgerðin var
úr skjaldbökuskel, en glerið úr
venjulegu gleri.
—o —
í fangelsi einu i Illinois arfleiddu
ellefu þúsund fangar vísindin að
augum sínum.
Við sjáum alla hluti öfugt, en
heilinn snýr þeim við. Um þetta
lærum við í skólanum, en um hitt
er ekki kennt, hvernig heilinn fer
að því að gefa okkur rétta mynd
Á fyrstu árum Viktoríu drottn-
ingar var bannað að bera gleraugu
við hirðina, þegar hennar konung-
lega tign var nærstödd.
[19]
HEIMILISBLAÐIÐ