Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Síða 27

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Síða 27
HEFND FANGANS| Framhaldssaga eftir Max Brand | ^ ♦ ##############j EFNISÁGRIP: Harry Destry hafði verið dæmdur í tíu ára fangelsisvist fyrir járnbrautar- rán. En hann var dæmdur saklaus, og hann strengdi þess heit að hefna sín á kviðdómendunum tólf, er dæmdu hann. Sökum þess hve hegðun Harrys var góð í fangelsinu slapp hann þaðan eftir sex ár. Og þá hefst hann handa með hefndina. Hann heimsækir unnustu sína, Charlie Danger- field, er hafði heitið því að bíða hans. En hún verður fyrir vonbrigðum. Hann er ekki sá sami Harry Destry og áður. Fangelsisvistin hafði beygt hann. Brátt kemur í ljós, að Harry fer sér hægt, en er þó ekki síður hættu- legur viðureignar en áður fyrr. Hann drepur einn af óvinum sínum í sjálfsvörn og annan gerir hann að krypplingi. Sá þriðji verður að at- hlægi allra, svo að mannauminginn neyðist til að flýja úr bænum. Chester Bent, sem telur sig vera vin Harrys, er jafnframt hrifinn af Charlie. Chester gefur Harry úrvalshryssu, Fiddle að nafni. Lögreglustjórinn í bænum heitir Ding Slater. Hann fær Destry í lið með sér til þess að koma upp um þjófnað, sem framinn hefur verið í verzlun einni. Destry tekur málið að sér, því hann grunar að hér sé einn óvina hans að verki. Nokkru áður hafði piltur að nafni Willie Thornton bjargað lífi Destrys. ^egar hér er komið sögu hefur Harry tekizt að ná þjófnum, og hét hann Lefty Turnbull. Harry er á leið með Lefty til Wham. Lefty er einn af dómendunum forðum, en nú eru þeir sex úr sögunni af tólf. TVestry sagði dimmum rómi: — Nú koma þeir saman. Þeir dreifð- ust, þegar þeir heyrðu, að ég væri kominn aftur. Þeir komu saman, þegar þeir fréttu, að ég væri farinn spekjast. Þeir hlupu á burt aft- Ur, þegar þeir sannfærðust um, að eS væri ekki allur, þar sem ég væri séður. Og nú þegar ég hef komið uokkrum þeirra fyrir kattarnef, uiunu þeir hópast saman! — Ertu hræddur, Harry, spurði fanginn forviða, eins og hann áliti, að Destry þekkti ekki hræðslu. '— Dauðhræddur, . sagði Destry. Hver skyldi ekki vera það ? Hvernig var nú sagan um stokkana sex og einn að auki? Þeir eru þarna fyrir ueðan okkur og leggja saman ráð SIn- Sex rottur, er koma saman úti 1 horni, eitraðar eins og eiturslöng- ur — 0g þær hata mig! Og hann, sem er fyrir þeim, — hann þætti m®r gaman að hitta! Hver er hann, spurði Lefty. Sá, sem leggur á ráðin fyrir ykkur! sagði Destry uppvægur. Hver sendi José Vedres með bréf til HEIMILISBLAÐIÐ Orrins? Það vil ég fá að vita! Lefty, ef þú vilt segja mér það, get ég ef til vill bjargað þér úr höndum sheriffans. Ég lofaði honum að koma með þig til hans. En hví skyldi ég ekki geta rænt þér frá honum aftur ? — Við hvern áttu ? hrópaði Lefty, ákafur yfir þeirri von, sem honum var gefin. Hver er það? — Veiztu það ekki? spurði Des- try. Lætur hann þig ekki vita, hver hann er? Mig skal ekki undra, þótt ég finni hann ekki! Ég skal segja þér, að tilhugsunin um hann skelfir mig æ meir. Ég er ekki hræddur við Ogden, Wendell, þig eða Orrin. Hverjir eru hinir? Það er Clifton litli. Haus hans er of lítill til þess að rúma slíkar ráðagerðir. Það er Henry Cleeves, sem þekkir meira til véla en manna. Bud Williams mundi vera farinn, ef um það væri að ræða að slást með hnefunum, og Bud Truckman og Bull Hewitt eru báðir svo sljóir. Og þá er Philip Barker einn eftir. Það er ekki ómögulegt, að hann búi yfir ríkri kímnigáfu, en ég er ekki alveg viss. Lefty, ef [23] þú gætir frætt mig um þetta, skal ég áreiðanlega launa þér það! Hver er foringinn, sem ákveður hvað gera skal ? Ég verð að ná honum eða engum «113! Destry talaði þvoglulega, því hann var fremur að hugsa upphátt en að tala við fanga sinn. En þegar Lefty heyrði tilboð það, sem hann gaf hon- um, hristi hann höfuðið. — Ég veit ekki hver hann er — alls ekki! sagði hann. Ég held, að þú ímyndir þér þetta! — Er erfitt að þefa uppi rottur í gömlu húsi? spurði Destry. — Nei. — Ég hef þefað uppi rottu, stóra rottu! sagði Destry. Nú er nægilega dimmt fyrir okkur til þess að fara niður! Þeir komu í útjaðar bæjarins og fóru varlega, unz þeir náðu húsi sheriffans. Þeir sáu greinilega inn um bjart- an eldhúsgluggann, þar sem frú Slater var að þvo upp. Þeir gengu dálítið lengra og sáu þá Ding Slat- er. Hann sat á svölunum með inni- skó á fótum, blað í höndunum og pípu á milli tannanna. — Ef glæpamenn hata hann, hvers vegna koma þeir þá ekki og myrða hann eitthvert kvöld eins og þetta? mælti Destry. — Af því að fuglar koma ekki nálægt slöngum, ef þeir geta kom- izt hjá því, svaraði Lefty. Harry, um leið og ég geng hingað inn er ég kominn í helvíti! Ég dæmdi síð- astur af öllum í dóminum . . . — Ertu að biðja þér griða ? spurði Destry hæðnislega. — Nei, svaraði hinn. Svei því, að ég kæri mig um það. Á ég að fara á undan? — Já, farðu á undan. Destry og Lefty gengu upp tröpp- urnar og inn um svaladyrnar, og svo stóðu þeir allt í einu fyrir framan sheriffann. Ding Slater braut saman blaðið. — Sælir, sagði sheriffinn. Hvert ert þú að fara, Lefty? Hver er með þér ? — Ég, sagði Destry. Þegar sheriffinn heyrði rödd Destrys, stökk hann á fætur eins og drengur.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.