Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Side 28

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Side 28
— Það getur ekki hafa verið Lefty, sera tæmdi peningakassann hjá Fitzgerald? mælti hann. Lefty er ekki kunnur fyrir smáþjófnaði! Destry henti peningaveski á borðið fyrir framan sheriffann. — Hann segir að peningarnir séu þarna. Ég veit það ekki. Ég læt þig um að athuga það. En hér er hann. Ding, þú vissir, áður en ég fór, að hann hafði gert það. — Hvaða bull er í þér, Harry. Hvernig hefði ég átt að vita það? — Þú sendir mig, af því að þú hélzt, að mér tækist ekki að ná honum. Þú gerðir það viljandi. — Heldurðu, að ég hefði þurft að biðja um hjálp, ef ég hefði vit- að hver gerði það? spurði sheriff- inn undrandi. Harry, stundum tal- ar þú eins og heimskingi . . . En . . . — Taktu við þessu, sagði Destry. Ég hef unnið eitt óþokkaverk fyrir þig. Það er nóg. Það mun taka mig mörg ár að hreinsa mig af því. Hann henti lögregluskírteininu á borðið og snerist á hæli. — En Harry — Harry! kallaði sheriffinn. En Destry var þotinn burtu. Hann gekk þangað, sem hann hafði tjóðrað hryssuna. Svo reið hann hægt um Wham, unz hann kom að húsi Chester Bents. Ennþá einu sinni tjóðraði hann hryssuna í dálítilli fjarlægð frá húsinu. Svo gekk hann hægum skrefum stíginn heim. Neðri hæðin var upplýst. Hann hóf sig á hönd- unum upp á gluggabrún. Hann sá Bent sitja í bókaherberginu, og virt- ist hann niðursokkinn í lestur. En öðru hvoru leit Bent upp úr bók- inni og einblíndi á vegginn fyrir framan sig. Aðaldyrnar voru skammt frá, en af einhverjum ástæðum fór Destry ekki inn um þær, heldur hóf hann sig upp á gluggabrúnina og fór síðan inn um gluggann. Destry mjakaði sér frá glugganum, þétt upp við vegginn. Svo vafði hann sér sígarettu. Bent hafði ekki orðið var við hann. Stór bók lá opin í kjöltu hans, og Destry beið með að kveikja á eldspýtunni. Bent hrökk í kút, rétt eins og hann hefði heyrt skammbyssuskot. En hann stökk ekki á fætur. Hann hallaði sér áfram í sætinu og sneri höfðinu lítið eitt. — Harry! sagði hann, og honum varð léttara um hjartað. Destry gekk að stóra skrifborð- inu og settist á brún þess og sletti til öðrum fætinum á meðan hann virti félaga sinn fyrir sér. — Hvers vegna komstu inn um gluggann? spurði Bent. — Maður er ekki eins og hest- ur, sagði Destry. Maður getur orðið þreyttur á að fara alltaf inn um sama hliðið. Þess vegna fór ég yfir girðinguna í nótt. — Við hvað áttu, drengur minn ? — Ég hef fengið nýtt mál til umhugsunar, sagði Destry, og þess vegna kom ég hingað! — Hvað þá? — Nokkuð, sem bezt mun að ræða ekki um við þig, sagði Destry. Bent leit niður á fætur sina. Svo sló hann með fingrunum á spjöldin á bókinni. Þegar hann leit aftur upp, sagði Destry: — Eru fellingarnar í hnakka þínum, Chet, fita eða vöðvar ? — Vöðvar? Hvað geri ég til þess að fó vöðva ? spurði Bent. Ég er enginn íþróttamaður, Harry, það veiztu. — Sumir menn eru fæddir sterk- ir og eru það alltaf, sagði Destry. En ég var ekki að hugsa um það. — Heldur hvað, Harry? — Mér datt í hug eitt sinn, þegar ókunnur drengur kom í skól- ann. Hann var ekki sérstaklega sterkbyggður. En hann leit út fyrir að verða kraftalegur og sterkur. Ég hræddist hann frá þvi fyrst ég sá hann. Og í mánuð forðaðist ég hann, þar til ég dag nokkurn var að fara heim úr skólanum og ég sá augu hans stækka, þegar ég gekk framhjá honum. Þá vissi ég, að hann var eins hræddur við mig og ég var við hann. Þess vegna börðumst við á staðnum! — Og þú hafðir betur, eða hvað ? — Ég man það ekki, en . . . — Heldurðu að ég sé hræddur við þig, Harry ? — Satt að segja, sagði Destry rólega, held ég, að þú sért einn þeirra manna, sem ekkert hræðast á himni né jörð! Tuttugasti og fjórði kapítuli. að leit ekki út fyrir, að Bent yrði hrifinn af gullhömrunum, þvi hann bandaði með hendinni og sagði: — Ég er bara tilfinninga- næmur. Það hef ég alltaf verið! — Eitthvað af þessari viðkvæmni fékk útrás í vel útilátnum kinn- hestum, sagði Destry. Nú ertu full- orðinn, vinur, en þegar ég stóð fyrir utan gluggann, gat ég ekki varizt þeirri hugsun, að ég þekkti þig ekki, eins og þú ert í raun og veru. — Ef til vill ekki, Harry. Þú hefur haft of háar hugmyndir um mig. — Hvers vegna siturðu með þessa bók, þegar þú lest ekki í henni? spurði Destry. Við þessa spurningu reif Bent sig að lokum upp úr hugsunum sín- um og horfði hvasst á Destry. Svo benti hann á gluggann bak við sig. — Blekking ? spurði Destry og beit saman vörunum. — Blekking, sagði Bent hrein- skilnislega. — Það þykir mér afleitt að heyra. — Það vissi ég. En þarna hef- urðu sannleikann. Ég get ekki skrökvað að þér, Harry. Hann andvarpaði. — Ertu að reyna að sannfæra þá um, að þú sért hér við lestur? — Já. Ég er metnaðargjarn. Ég vil, að fólk beri virðingu fyrir mér. En sannleikurinn er sá, Harry, að þegar ég kem af skrifstofunni á daginn, er ég svo uppgefinn, að ég get bókstaflega ekkert gert. Ég vil þá gjarnan vera einn með hugsanir mínar. Þannig er það! Jæja, það verður að vana að sitja hérna. Svo heyri ég fólk tala um kvöld- vinnu mína. Þess vegna leik ég þennan leik. Og þá hefurðu heyrt það! Destry kinkaði kolli. — Ég skil það, sagði hann. En ég hefði heldur kosið . . . Hann þagnaði. [24] HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.