Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Síða 29

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Síða 29
— Þú hefðir heldur kosið, að ég gerðist bankarseningi heldur en að stunda þetta starf? — Það geri ég hreinskilnislega sagt! — Þú hefur á réttu að standa, mælti Bent. Sérhver glæpur er krefst hugrekkis er betri en þetta! Þú munt ávallt álíta mig lítilmenni eftir þetta, Harry! — Ég mun alltaf líta upp til þín af því að þú sagðir mér allt af létta, Bent! Ég held, að ég mundi ekki virða þig meira, þótt þú legðir líf þitt í sölurnar fyrir mig! Hann gekk allt í einu til Bents og lagði hönd sína á axlir hans. — Stundum, sagði hann alvar- •egur í bragði, liggur við að ég trúi á Guð. Það er svo margt, sem kemur manni úr jafnvægi! Það kom í ljós, að vinir mínir voru þrjót- ar og glæpamenn gagnvart mér. Og konan, sem ég elskaði, sveik »ig við fyrsta tækifæri, sem bauðst. En ég á vin, sem bætir fyr- ir þetta allt. Þig, Chet. Hann stanzaði snögglega og smellti með fingrunum. — Ég fer að hátta. Ég hygg, að þetta sé síðasta nóttin mín hér. — Hvers vegna sú síðasta ? Hvers vegna segir þú það, gamli vinur ? — Ég finn það á mér, að þeir eru á hælum mér. Þeir eru sex eftir. — Ég hélt, að þeir væru sjö. — Ég setti Lefty inn í kvöld. Ég elti hann uppi. Ding gamli Slat- er bað mig að elta hann, og ég neyddist til að fara með hann í steininn. — Segðu mér frá því! Lefty i steininum ? Hann er á við tvo menn! — Ég kæri mig ekki um að ræða þetta. Þú munt heyra fólk þvaðra um það á morgun. Góða nótt, Chet! — Góða nótt, gamli vinur. Ég hugsa — að þú sért öruggur hér í mínu húsi! — Auðvitað heldurðu það. En maður getur ekki haft auga með hverri hurð eða hverjum glugga! Hann brosti og benti á gluggann, heimilisblaðið sem hann hafði komið inn um. Síðan fór hann út úr herberginu. Þegar hann kom fram í hálf- dimman ganginn, stanzaði hann öðru hvoru og hlustaði eftir, hvort hann heyrði mannamál. Því næst gekk hann upp stigann, er lá að kvistherbergi því, sem hann var vanur að gista í. En hann opnaði ekki strax herbergisdyrnar. Hann nam staðar og hlustaði. Ekkert hljóð barst að innan. Þó gekk hann ekki inn um leið og hann sneri hurðarsnerlinum hægt og hljóðlaust. Hann þrýsti sér upp að veggnum, en rétt á eftir fór hurðin að opnast af drag- súgnum. Engin hreyfing varð greind í svefnherberginu. Samt beið Destry, unz dragsúgurinn hafði opnað hurð- ina alveg. Hann stóð í horni gangs- ins og beið þolinmóður. Myrkrið var svart, en þó gat hann greint dyraumbúnaðinn. Loksins brá skugga fyrir í gætt- inni, og annar kom í ljós, og tveir þar á eftir. Þeir námu staðar augnablik, en hurfu svo niður í ganginn. Rétt hjá Destry stanzaði foringinn. Hann rétti út handlegg- ina og ætlaði að stöðva félaga sína. — Þetta er glatað tækifæri, sem kemur aldrei aftur! sagði hann. — Mér er nóg boðið, mælti einn mannanna. Ég þoli þetta ekki leng- ur. Mér var nóg boðið, þegar bölv- aðar dyrnar opnuðust sjálfkrafa! — Þær hafa opnazt af vindin- um, fíflið þitt! — Mér stendur alveg á sama af hverju það stafar. Mér er nóg boðið! Ég fer leiðar minnar. Hinir geta gert það sem þeim sýnist! — Bud, viltu vera kyrr hjámér? — Hvar ? — Auðvitað inni í herberginu! Hann hlýtur að koma þangað inn. Hann er búinn að ræða við sher- iffann og þá kemur hann hingað. Ég hugsa, að hann sé að tala við Bent einmitt núna hér fyrir neðan! — Ég skal segja þér, svaraði Bud, að ég hef ekkert á móti því að bíða, en ég neita að dvelja áfram í þessu herbergi, fyrst andi er kominn inn í það! — Andi, fíflið þitt! [25] — Þú segir, að vindurinn hafi opnað hurðina. Það getur vel ver- ið. En hann blés um leið anda inn til okkar! — Bud, ég trúi því ekki, að þú meinir það, sem þú segir. Ég trúi þvi ekki! — Vindhviða, sem snýr hurðar- snerli, getur líka blásið inn anda! sagði Bud. — Fíflið þitt, auðvitað hefur hurðin verið kviklæst! — Mér er samá. Ég hef fengið nóg! Þeir gengu niður stigann og fóru eins hljóðlaust fjórir og Destry hafði komið upp. Destry dró upp marghleypu sína og var reiðubú- inn að hleypa af, þegar ástæða væri til. Þrátt fyrir myrkrið hlaut hann að hitta! En hann lét þá fara. Sjálfur lá hann á fjórum fótum á gólftepp- inu og hlustaði. Honum heyrðist einhver opna glugga, en það var svo fim- lega gert, að hann var ekki öruggur um það. Það leið góð stund, áður en hann var viss um, að engir hættulegir óvinir væru lengur í húsinu. Hann ákvað að ganga niður og segja Chester Bent frá því, er hann hafði séð og heyrt. En eftir nokkra umhugsun breytti hann um ákvörðun. Bent gat ekkert gert annað en afsakað, að hann skyldi ekki geta veitt gesti sínum vernd. Mennirnir voru horfnir. Bent mundi ekki geta haft upp á þeim í myrkrinu, og þótt hafin yrði leit í nótt, mundi hún að öllum líkindum ekki bera ár- angur, fyrr en þá á morgun. Þess vegna fór Destry inn í svefnherbergið og henti sér upp í rúmið án þess að fara úr fötunum eða læsa hurðinni. Augnabliki seinna var hann sofnaður. Hann vaknaði fyrir dögun. Hann flýtti sér á fætur, þvoði sér um andlit og hendur, settist við borðið og skrifaði í flýti: Kæri Chet! Þetta eru aðeins nokkur kveðju- orð. Ég ætla að yfirgefa Wham og þá einnig þig. Ég tek ekki mikinn farangur með mér, en skil mest

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.