Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 14

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 14
MAGNÚS JÓHANNSSON FRÁ HAFNARNESI mmm mm AÐ var stórsjór, þreif- andi bylur og nátt- myrkur, í einu orði sagt, manndrápsveð- ur. Dallurinn var eins og flæðisker, þungur og fram- hlaðinn. Þrisvar höfðum við kuðlað vörpunni út fyrir, en í öll skiptin fengið hana inn á þil- far aftur ásamt þungum löðr- ungum. Karlinn bölsótaðist í brúnni og ruddi úr sér heilum syrpum af blótsyrðum, þeim mögnuð- ustu, sem ég hef heyrt til þessa. Þau skullu á okkur, bæði á bak og fyrir, hrekjandi úr einu verkinu í annað. Og utan við borðstokkinn svall hafið, æst og úfið. Það var jólanótt. Gegnum hálfopnar borð- salsdyrnar barst til okkar dauf- ur ómur sálmasöngs og messu- gerðar. I landi, út við sjó og inn til innstu afdala, sátu menn prúðbúnir kringum útvarps- tækin, og það var hátíðabrag- ur á öllu. Og í fjárhúsunum jórtruðu ærnar í ró og spekt, eftir að hafa sleikt upp tugguna sína, sem var venju fremur vel úti- látin. Kisa og hvutti löptu úr sama dallinum, án þess að láta svo mikið sem skína í tennurnar. Maður sá þetta allt svo ljós- lifandi fyrir sér meðan hvítt særokið dundi á okkur. En hérna vestur á Halanum stóð- um við hver framan í öðrum, öskrandi og urrandi yfir gauð- rifinni vörpu, sem hafið skyrpti fyrirlitlega í okkur aftur. Hlægilegt. Hvað bárum við svo úr být- um? Votan bjór, veðruð andlit, blót og formælingar. ^ Við vorum aumkunarverðir. Jafnvel dýrin með sitt hálf- volga lap áttu við betra að búa. Rödd skipstjórans, hörð og nepjuleg, skall á okkur: - Út með helvítis draslið! Við paufuðumst gegnum mökkinn með skáhallt þilfarið undir fótunum og snærjúkandi loftið yfir höfðinu. Skipinu hafði verið snúið til hlés. Allir sem einn réðumst við á pokann og kuðluðum honum útbyrðis. Það hafði slegið ofurlítið á, rofað til í lofti, og við sáum stjörnur, skærkaldar jóla- stjörnur. Þær drápu tittlinga framan í okkur, íbyggnar í firrð sinni. Við litum dolfalln- ir upp úr verkum okkar yfir þessum snöggu veðrabrigðum. - Hann er að lægja, sagði einn. - Það væri ekki vanþörf, sagði annar. - 0, verið ekki of bjartsýnir, piltar mínir.sagði Tómas gamli bátsmaður og glotti kuldalega. Einmitt svona glennur eru undanfari svæsnustu hryðj- anna. Gamlir eru alltaf elztir. Það var ekki búið að slá í blökk, þegar syrti að aftur. Það heyrðist þungur niður, líkt og i fjarlægum fossi. Síðan buldi élið á brúnni og toppljósin hurfu í hvíta iðuna. - Klárt! kallaði skipstjórinn. Svo skellti hann aftur glugg- anum, og dallurinn seig af stað, dræmt og treglega. Það þýtur og hvín í reiðanum, og siglu- ljósin varpa blóðrauðum eld- hnífum út í hroðann. Kolgræn- ir brotsjóar hvolfa sér yfir hvalbakinn og streyma í hvít- um fossi niður á þilfar. Við drögum okkur í skjólið. Kokkurinn hefur lagt vel á borð, betur en undanfarið. Það eru líka jól, í því liggur munurinn. Við förum ekki úr gallanum, losum aðeins hökubandið og ýtum sjóhattinum aftur a herðar. Hér er hlýtt og notalegt, en fyrir utan ymur koldimm nóttin. Það færist yfir okkur frið- ur og ró, næstum sætþungur höfgi. Allir verða blíðir og bljúgir. Manni liggur við vikn- un. Jafnvel Tómas gamli báts- [194] HEIMILISBLAÐIP

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.