Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 30

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 30
Kóngur kútveltist eftir góljinu í eina áttina, kórónan í aöra og ríkisepliö í þá þriöju. Allir stóðu nú upp og kross- lögðu hendurnar á brjóstinu. - Vill yðar hátign allra mildilegast þóknast að loka yðar konunglega munni? - Hvað segið þér? - Það er óhjákvæmilegt, yðar hátign, að halda sér saman. - Jæja, ég er til. - Og svo verður yðar hátign að loka augunum. - Jæja. Byrjar hann nú bráðum? - Á augabragði! Stúdentinn brá þá út und- an sér flötum lófanum, og kóngur vissi eigi fyrri til en hann fékk roknaskell á ,,feita“ vangann, svo að hann kútvelt- ist eftir gólfinu í eina áttina, kórónan í aðra og ríkiseplið í þá þriðju, en um veldissprot- ann hélt hann dauðahaldi. Og allir hrópuðu einum munni: - Hjálpi oss! Það var kóngsdóttirin , ein, sem sendi stúdentinum koss á fingri sér, sneri sér við og hlát- urinn sauð niðri í henni. Kóngur sat nú á gólfinu, laf- móður eftir allan veltinginn og hrækti og hrækti í ákafa. - Foj — tvoj! Ég verð — foj! — að segja — tvoj! foj! tvoj! tvoj! — ó, hvað mér létti við þetta! Þetta er svei mér ágætt ráð, þrátt fyrir allt — tvoj! Ráðherra, færðu mér hrákabakkann. - Komið með vatn! bauð stúdentinn. Og vatnið kom, og kóngur skolaði innan á sér munninn. Og kýlið var allt í burtu, og kóngur í sjöunda himni og var nú orðinn sama konung- !ega ljúfmennið og áður. - Yðar hátign kennir þá ekk- ert til framar? spurði stúdent- inn. - Nei, hamingjunni sé lof! En hart var það meðan á því stóð — si sona. - Þetta er nú að vera hag- sýnn, sagði stúdentinn. - Ja, vissulega. Hagsýnir menn eru að mínu skapi. Ég held hér hundrað . . . Jæja, en nú skulum við gera okkur glað- an dag. Komdu nú, dóttir mín. Sko! þetta er þá hann, sem á að verða maðurinn þinn. Lízt þér vel á hann? - Já, mér lízt ljómandi vel á hann, góði pabbi. Má ég kyssa hann? - Gerðu svo vel — eins marga kossa og þú vilt. Hann er að vísu ekki nema stúdent, en við hérna erum laus við alla hleypidóma og búum í menn- ingarlandi. Kysstu hann bara, allt hvað af tekur — si sona. - En drottningin mín góða, en hvað ég er orðinn svangur. - Og ég líka, sagði stúdent- inn, alveg er ég glorhungraður. Nú var þá sezt að borði. Ég þarf nú varla að segja ykkur, að þarna var glatt á hjalla. Kóngur lék við hvern sinn fingur, og stúdentinn og kóngs- dóttirin réðu sér ekki fyrir fögnuði. Það var nú ekki látið lengi bíða með brúðkaupið. Stúdent- inn lauk læknisprófi sínu, þótt kóngur segði nú reyndar, að hann gæti læknað, þó að hann tæki ekki próf. Og er prófi var lokið, þá gerði kóngur hann að prinsi. Hvort hann varð kóngur, er mér ókunnugt, en ég held hann hafi orðið það. Jæja, þá veizt þú það, hvern- ig kóngurinn losnaði við tann- kýlið. Og fáir þú einhverntíma tannkýli, þá geturðu reynt að verða af með það ,,si sona“. [210] HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.