Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Qupperneq 31

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Qupperneq 31
Dægradvöl barmnna Skemmtileg dýr handa börnunum. Auðvelt er að búa til þessi litlu, snotru húsdýr, þau kosta sama sem ekki neitt og auk þess eru þau svo skemmtileg, að þeim yrði ekki tekið með meiri fögnuði, þótt þau væru keypt tilbúin í búð. Samkvæmisleikur. Þeir, sem hafa dálitla listamanns- hæfileika, geta gert margt fallegt úr fá- einum pappírsmið- um, sem festir eru á dökkan grunn. Það vekur hina mestu undrun hjá áhorfendum, hvern- ig listamaðurinn býr til heilar mynd- ir með því einu að skella pappírsmið- unum, að því er virðist fyrirhafnar- laust, á dökka flöt- inn. Fyrst þarf lista- maðurinn að verða sér úti um hæfileg- an grunnflöt. Til þess má nota fjöl eða þykkt pappa- spjald, sem klætt er svörtum pappír. Betra er þó að nota svart flauel. í gegn- um spjaldið er stungið aragrúa af nálum, þannig, að oddarnir snúi fram og nái um það bil % úr þumlung fram úr flauelinu. Þar næst klippir listamaðurinn nokkra miða og renninga úr hvítri pappírsörk, sem engan getur grun- Efnið í þau er ekki annað en korktappar, eldspýtur og nokkrar litskrúðugar fjaðrir, og þegar það er fengið, er ekki lengi verið að búa til gripahjörð á heilan búgarð. að, til hvers eigi að nota, er þeir eru sýndir áhorfendum. Síðan skell- ir hann pappírsmiðunum á spjaldið í einu vetfangi, og sitja þeir þá fastir og sléttir á nálaroddunum. Og áður en nokkur veit af, er komin mynd af borði á spjaldið. Á 1. og 2. mynd sést, hvernig farið er að þessu. Á 1. mynd sjást pappírsmiðarnir, tilbúnir til notkunar, og á 2. mynd sést, hvernig þeim er fyrir komið á spjaldinu. Miðunum er ekki raðað þétt saman, heldur haft hæfilegt bil á milli þeirra, eins og við þarf, til að skuggar komi fram í myndinni. Vegna þeirra virðast t. d. borðfæt- urnir vera ferstrendir. ímyndunar- afl áhorfendanna fullgerir því mynd- irnar. Á 3. og 4. mynd er sýnt, hvernig pípuhattur er búinn til. Laghentir menn geta á þennan hátt búið til fjölda einfaldra mynda. 5. mynd er af ungri stúlku, og 6. mynd af karl- manni. Aðalatriðið er, að áhorfendurna gruni ekki, hvað gert muni verða úr miðunum, fyrr en myndin er til- búin. Þess vegna þarf listamaður- inn að hafa glöggvað sig vel á því áður, hvér séu aðalatriði myndar- innar, sem hann ætlar að búa til, svo að ekkert vanti á heildarsvip hennar. Hann getur líka rissað lög- un miðanna lauslega á pappírinn með blýant, áður en sýningin hefst, svo að hann geti klippt alveg hik- laust og þurfi ekki að óttast mis- tök. Áhorfendunum er svo sýnd sú hlið pappírsins, sem auð er, og dett- ur þá engum í hug, að listamaður- inn hafi undirbúið pappírinn. Tappaspilið. Útvegið ykkur fjöl, 40x40 cm. að stærð, og rekið gegnum hana þrjá langa nagla. Á odda þeirra skuluð þið stinga stórum, máluðum kork- töppum. Fyrir framan naglana skrif- ið þið tölurnar 5, 10 og 15. Síðan búið þið til fimm kasthringi úr við- artágum, gildum vír eða einhverju 1. mynd. 2. mynd. V 5. mynd. 6. mynd. HEIMILISB LAÐ IÐ [211]

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.