Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 37

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 37
I, Þrá hans til hennar var allt í einu rokin út í veður og vind. Nú sá hann loksins, hvernig hún var, daðurgjörn og spillt af of miklu dálæti. Hann var ekki í neinum vafa um, að það var ytri fegurð hennar, sem hafði hrifið hann. En í æsingu augnabliksins rétti hann faðminn á móti henni og dró hana * til sín. Hún beygði höfuðið og kyssti hann með æfðum, hungruðum vörum. Allt í einu fyrirleithannsjálfansig. Hann ýtti henni harkalega frá sér. - Þú veizt ekki, hvað þú gerir, Margrét. - Það þarf enginn að fá að vita það, flýtti hún sér að segja. - Ég hef ekki tíma til slíkra hluta framar, Margrét. Konur eiga ekki heima í lífi mínu. Þær eru mér einskis virði. Hún brosti, móðguð yfir and- spyrnu hans, en örugg um vald sitt yfir honum. - Þú verður að átta þig á þessu, Duncan! Ég finn, að ég er að byrja nýtt líf! - Nei, það getur ekki orðið, Mar- grét — af því — af því að ég elsk- aði þig einu sinni. - Áttu við, að þú elskir mig ekki lengur? sþurði hún og horfði van- trúuð á hann. Hann stóð hreyfingarlaus með álútt höfuð. - Já, þannig er það, Margrét, fyr- irgefðu mér . . . Hún hafði aldrei á ævinni verið eins særð. Hún varð náföl, og rödd hennar varð allt í einu hörð og þóttafull. - Við skulum fara inn. Hér er svo kalt! HANN fór strax úr samkvæminu, en honum til mikillar skapraun- ar beið Anna hans úti á fröppunum. - Ég var að hugsa um að ná í bíl, sagði hún. Viljið þér vera með? Hann var andvígur öllum í kvöld, og hann sagði, stuttur í spuna: - Nei, ég þakka. Ég ætla að ganga. - Þá geng ég líka. - Anna, ég kýs helzt að vera einn. - Er það mögulegt? En þér skul- uð sannarlega njóta félagsskapar mins. Hann var gramur yfir því, að hann skyldi ekki geta losnað við hana, en þótt hann gengi hratt, tókst honum það ekki. Stuttu seinna sagði hún elskulegum rómi: - Það var ánægjuleg kvöldstund, sem þér áttuð á svölunum, vinur minn! Hann lét sem hann heyrði ekki, hvað hún sagði, en hún hélt áfram, án þess að láta sér bregða: - Það lítur út fyrir, að Rómeó hafi ekki verið ánægður með hlut- verkið, eða hvað? Þér gerið yður að fífli, Duncan! Hann þagði enn. - Það hefur alltaf verið skoðun mín, sagði hún hugsandi, að mað- ur, undir slíkum kringumstæðum, eigi að njóta réttarins vegna þess að hann er soltinn, enda þótt hann fái samvizkubit eftir á! - í hamingju bænum, þegið þér! sagði hann reiður. - En, kæri doktor! Ég er aðeins vísindaleg, eða á ég heldur að segja líffræðileg? Ég hef gefið yður auga síðustu mánuðina. Öll þessi heila- brot leiða aðeins til vandræða, auk þess sem þau koma í veg fyrir, að þér getið haft hugann við verkefn- in. Hvers vegna farið þér ekki út og drekkið yður blindfullan eða ger- ið sjálfan yður að fífli einu sinni? Núna vil ég sjá yður ábyrgan gerða yðar, en ekki líkan púðurkerlingu, sem getur sprungið á hverri stundu! - Hvers vegna viljið þér það núna? - Af því að ég vil, að þér sækið um aðalprófessorsstöðuna við há- skólann. Hann hló hæðnislega. - Overton hefur þegar tryggt sér hana. - Já, en aðeins ef þér sækið ekki, Duncan, mælti hún og rödd henn- ar var innileg og alvarleg. Þér er-^ uð ungur og efnilegur, og þér eruð eini maðurinn við skólann, sem hef- ur mikla hæfileika. Og Lee prófess- or veit þetta ósköp vel. Það getur ekki verið, að þér óskið þess, að Overton fái stöðuna. Hann mundi eyðileggja skólann. - Hvers vegna sækið þér ekki sjálf, Anna? - Þeir mundu aldrei velja konu í þetta starf, svaraði hún og reyndi að leyna vonbrigðum sínum. Það er BARRY f BAÐI Barry litli er 11 mánaða gamall og hann nýtur þess að fara daglega í bað, og skemmtir sér þá við að sigla litlu bátunum sínum. En hann gerir sig ekki ánægðan með að vera truflaður af tamda páfagauknum sínum, þegar hann er niðursokkinn í svo skemmtilegum leik. BÚIÐ UM JÓLAGJAFIR Um þessar mundir eiga bakararnir í Dresden mjög annríkt við fram- leiðslu á Christstollen, kökutegund, sem er einkennandi fyrir bakaraiðn borgarinnar, en annars þekkt langt út fyrir landamæri Þýzkalands. Fjöldi Þjóðverja senda þessa köku til vina og kunningja í öðrum löndum sem jólakveðju frá heima- landinu. HEIMILISBLAÐIÐ [217]

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.