Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Qupperneq 39

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Qupperneq 39
þess vegna, sem ég set allt mitt traust á yður. - Og hvaða hagnað ætlið þér að hafa af því? - Maður getur komið ýmsu fram, ef maður er vinur forstjórans, til dæmis væri ekki afleitt að fá nýja skurðstofu, nokkra aðstoðarlækna til að hjálpa mér við rannsóknir mínar, nokkrar stofur handa sjúkl- ingum mínum, er fengju sérstaka meðhöndlun samkvæmt nýjustu rannsóknum mínum. - Nú, er þetta allt og sumt? Hún var fljót að svara: - Öfundið þér mér virkilega? Er það þakklgetið fyrir það, sem ég hef gert fyrir yður ? - Ætlið þér að fara að ræða um það? En ég er viss um, að ég hef enga von, en samt ætla ég að gera tilraun til þess að ná í stöðuna. Það er ekki að ástæðulausu, að ég sendi umsókn. Það er eina leiðin fyrir mig til þess að klekkja á Overton og fylgifiskum hans. Ég hef þráð það árum saman, og nú eru reikn- ingsskilin í nánd. Rödd hans varð allt í einu ofsafull: - Hvað er lífið annað en lygavef- ur? Heppni? Hún er fólgin í því, að maður bolar öðrum manni frá, sparkar í hann, svo að hann fellur í svaðið! Lifið! Hvað er það annað en svívirðilegur verðgangur, þar sem maður fórnar sjálfsvirðingu sinni? Ég skal sýna yður, að ég get verið jafn hrottafenginn og aðrir! - Já, hvers vegna skylduð þér ekki vera það ? sagði hún af eld- móði. Sjáið þér ekki, hvaða þýðingu þetta hefur fyrir yður? Þér verðið frægur sérfræðingur, löngu áður en þér bjuggust við! Þau voru komin þangað, sem hann bjó, og hann tók upp lykilinn. - Umhyggja yðar fyrir mér er sannarlega hjartnæm, Anna, sagði hann. Ef þér segið fleira, fer ég að vökva músum. Góða nótt! Um leið og hann sneri lyklinum í læsingunni, sagði hún áköf: - Þér sendið umsóknina strax. Ætlið þér ekki að gera það? Því fyrr sem hún kemst, því betra. - Hafið þér ekki skilið, að ég ætla að helga mig starfinu af lífi og sál? sagði hann. Farið nú, áður en ég skelli hurðinni á nasir yðar! HEIMILISBLAÐIÐ - Duncan! Hún rétti snöggt hend- ina í áttina til hans, og hún brosti afsakandi. Hann sá ekki, sökum myrkursins, hversu ástúðlega hún horfði á hann. Hann þráði það eitt að sleppa burtu. Áður en hún sagði fleira, hvarf hann inn úr dyrunum og lokaði hurðinni á eftir sér. 10. kapituli. Vatnsflóðið. ÖSTUDAGURINN var Duncan erfiður við skólann. Þá um morguninn hafði hann lagt inn um- sóknina. Svipur hans var ákveðinn, þegar hann beygði inn í Princes Street að húsinu, þar sem hann bjó. Eftir götunni á móti honum kom maður, klæddur sveitabúningi. - Hamish! - Jé, víst er það ég, doktor, svar- aði ökumaðurinn frá Strath Linton, um leið og hann tók í útrétta hönd Duncans. Hann var sýnilega að koma úr ferðalagi og var illa til reika. - Það er langt síðan maður hefur séð yður, doktor, sagði hann hikandi. Ég var staddur í Edinborg, og þá datt mér í hug að heilsa upp á yður. En þér eruð kannske orð- inn svo fínn maður, að þér hafið ekki tíma til þess að tala við fólk eins og mig. - Bull, Hamish! Mér þykir þvert á móti vænt um að sjá yður. Komið mqð mér og fáið svolitla hressingu. Skömmu seinna tyllti Hamish sér á stólbrún með húfuna á milli fót- anna og viskíglas í annarri hend- inni og skozka smjörköku í hinni. - Skál, doktor! - Skál, Hamish — og farnist yður alltaf vel! Og látið mig nú heyra fréttirnar. Hvað eruð þér að gera hér i Edinborg? - Ég átti að kaupa lyf og þess háttar. Duncan leit undrandi á hann. - Ég hélt, að þið keyptuð allt í St. Andrews. - Já, það gerðum við líka. En við verzlum annars staðar núna. Það er ódýrara. Duncan tók pipu sína og tróð tóbaki í hana. - Þið eruð vonandi við góða heilsu í Strath Linton? - Já, okkur líður sæmilega, flýtti . [219] RÖSKUR KVENMAÐUR Virginia Harriman heitir lagleg 26 ára gömul stúlka frá New Hamp- shire í Bandaríkjunum. Hún hóf háskólanám fyrir átta árum, en hætti því brátt og fór að vinna í námu. Henni fannst, að karlmenn ættu ekki að hafa neinn einkarétt á þess konar vinnu. Nú handleikur hún loftbor, krana og öll þess hátt- ar verkfæri af mikilli leikni. Hamish sér að segja. En það hefur gengið dálítið erfiðlega hjá Mur- doch lækni í seinni tíð. Hann er bráðum sjötugur, og hann hefur allt of mikið að gera. Framh.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.