Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 41

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 41
SMÆLKI Örðug spor. Skotar eru frægir fyrir tvennt: nízku sína og framúrskarandi aga í herþjónustu. Nýlega átti sér stað hörð barátta milli þessara eigin- leika hjá herdeild einni skozkri, sem gekk með sekkjapípur sínar gegn- um Maryborough í Ástraliu. Ástr- alskur hrekkjalómur hafði nefni- lega lagt fimm punda seðil á miðja götuna, sem herdeildin gekk eftir. En aginn reyndist þó ágirndinni sterkari, því að enginn Skotanna beygði sig niður til að taka upp seðilinn, þótt mörgu hýru auga væri til hans rennt. Það gerðist í einu af fjallahér- uðum Ameríku. Múlasni, sem bóndi einn átti, sló tengdamóður hans, svo að hún beið bana. Þegar hún var jarðsungin, dreif að múgur og margmenni, en flest voru það karl- menn. - Gamla konan hlýtur að hafa verið geysilega vinsæl, fyrst allur þessi fjöldi leggur niður vinnu, til að fylgja henni til grafar, sagði presturinn. - Þeir eru ekki komnir til að vera við jarðarförina, útskýrði bóndinn. Þeir eru komnir til að kaupa múl- asnann. Skoti einn, sem var á ferð í Alpa- fjöllunum, lenti í hríðarbyl og villt- ist. Einn hinna frægu St. Bern- harðshunda fann hann í snjónum. Þegar Skotinn hafði gætt sér á inni- haldi koníakspelans, sagði hann: - Þetta var gott, seppi minn. Farðu nú og sæktu alla hina hundana. [221] Copyright P, L B. Bo« 6 Cop«nhog«w 39 Fata morgana. Fátíður reipdráttur. í skógi einum í Austur-Bengal vildi það til, að risavaxin slanga náði í fót á fílsunga og hélt hon- um föstum með því að vefja aftur- endanum utan um tré. Dýrin tog- uðust þarna á klukkustundum sam- an, og horfðu á leikinn innfæddir menn úr þorpi einu þar í grennd- inni, þangað til þeir sáu, að slang- an hafði gleypt fótinn á fílsungan- um. Þar varð hún að láta staðar numið, og gat nú hvorugt losnað við annað, svo að áhorfendurnir komu á vettvang, drápu slönguna og ristu hana utan af fæti fíls- ungans. HEIMILISB LAÐ IÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.