Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 43

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Side 43
GAMALL MAÐUR LEIIiUR SÉR AÐ BRÚÐUM Friedrick Rieck heitir maöur þessi. Hann er einn af brautryðjendum þýzkrar leikbrúðulistar. Hann stofn- aði brúðuleikhúsið í Neunkölln, sem hann stjórnar enn. Þótt hann sé orðinn sextugur að aldri, stjórnar hann ennþá brúðunum sínum og á við þær eintal tímunum saman. HVAÐ ER ÞETTA? Það er hægt að geta upp á ýmsu. Það er ekki auðvelt að sjá, að það er brunabíll með vatnsrör úr plast- efni. Rörin eru svo létt, að einn maður getur auðveldlega borið tvö rör, sem hvort um sig er fimm metr- ar á lengd. — Rörin eru hentug á styrjaldartímum, þegar leiða þarf oft og tíðum vatn langar leiðir. Á ÞILFARI Þessi 45 tonna vélbátur á að fara frá Þýzkalandi til Equador. Hann getur siglt með 20 sjómílna hraða, og á að nota hann gegn smyglurum við Kyrrahafsstrendur Suður-Ame- ríku-ríkjanna. En yfir Atlantshafið hafa menn kosið að flytja hann á þilfari þessa stóra skips. Það er sjaldgæft, að fólk fari á stikl- um til brúðkaups, en það gegnir ef til vill öðru máli með sirkusfólk. Þegar þessi ungu brúðhjón fóru fyr- ir nokkru til borgarstjóraskrifstof- unnar í Birmingham, til þess að láta gefa sig saman í hjónaband, fylgdi þeim maður á háum stiklum, eins og myndin ber með sér. Stiklumað- urinn var svo fimur, að hann ósk- aði brúðinni til hamingju með kossi að vígslu lokinni. Það þarf engan að undra, þótt þessi unga stúlka sé umkringd af ungum mönnum. Hún er snotur á að líta, enda mundu jafnvel sjóliðsforingjar öfunda sjóliðana, sem bera hana á höndum sér. BLAÐRAN SPRAKK EKKI Þessí broshýra unga stúlka á mynd- inni skemmti sér við að skjóta í mark af boga á ströndum Florida sl. sumar. Nú skoðar hún árangur- inn af æfingum sínum, Blaðran, sem hún hefur fest í mitt skotmarkið, er enn ósprungin. [223] HEIMILISBLAÐ IÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.