Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1963, Síða 14

Heimilisblaðið - 01.09.1963, Síða 14
allt. Þú munt hafa nóg að gera við að annast börnin og stjórna heimilinu. Þú færð það mikið að gera, bæði um nætur og daga, að þér gefst ekkert tóm til að hugsa slíkar hugsanir framar.“ Nú var ár liðið. Enn þá hélt Mei-whan tryggð við draum sinn. Vinkonur þær, sem áttu trúnað hennar, stríddu henni, þegar hún vildi ræða um þessi efni við þær; þess vegna var hún alveg hætt að fitja upp á J>ví við þær. En hugsjón hennar var henni meira virði en nokkuð annað í lífinu. Stöku sinnum leitaði hún inn í litlu hofin við veginn og hugleiddi með daufu brosi á vör, hvort guðirnir hefðu nokkru sinni áður heyrt aðra eins bæn og hún bar fram fyrir þá. Fólkið var vant að biðja um að eignast syni, fá regn, að flóð sjatnaði •— og um auðævi. En um ást — nei. Það var eins og enginn kærði sig um slíkt. En í dag var brúðkaupsdagurinn hennar. Alein stóð hún í dyngju sinni, náföl og kyrr. Eftir andartak yrði komið og brúð- arskart hennar undirbúið. Út um glugg- ■ann sá hún blómum skrýtt kirsuberjatréð ■og bláan himininn á bak við það. „Ég má ekki hugsa um þetta núna,“ sagði hún ákveðin við sjálfa sig. „Við höfum verið trúlofuð frá fæðingu. Því skyldi hann endilega elska mig? Menn elska aldrei. Allir segja, að hjónaband hafi ekkert með ást að gera. En ég skal verða honum góð eiginkona. Ég mun gleyma draumi mínum.“ Á litla lakkborna borðinu við hliðina á ;snyrtibekknum hennar lá gljáandi málm- spegill. Hún lyfti speglinum, kraup á kné og virti andlit sitt fyrir sér. Þá er hún sá ávöl formin í svip sínum, fagrar boga- dregnar augabrúnir og þrýstnar varir, hvarflaði að henni, að ef til vill myndi hann raunverulega koma til með að elska hana. En — nei. Það var rangt. Draumur henn- ar um ást þýddi allt annað en fagurt and- lit og þokkafullur líkamsvöxtur. Hann var bæði stærri og þýðingarmeiri en svo. Ást- in þyrfti ekki að vera minni, þótt andlit hennar væri ófullkomnara og vöxturinn 190 sömuleiðis. „Ég má alls ekki hugleiða þessa hluti.“ Hún lagði spegilinn frá sér. Það mátti ekki seinna vera,- því í sömu andrá var herbergisdyrunum þokað til hliðar og þrjár digrar konur gengu inn með leyndardómsfullt bros á andlitunum- Á eftir þeim kom Bei-ling og nokkrar vin- stúlkur hennar, hálfhlæjandi og masandi- „Kyrrar, stúlkur, annars verðið þið að fara leiðar ykkar,“ sagði ein af eldri kon- unum áminnandi. Ein þeirra þrekvöxnu átti að færa Mei- whan í hvítu klæðin, sem brúðir eru látnai' bera, og önnur þeirra átti að annast hái’- greiðsluna. Ching Tai-tai, sú yngsta af þeim þrem, átti að binda fyrir augu henni, því hún mátti ekki hjá brúðguma sinn fyi'r en á öðrum degi eftir brúðkaupið. Það var siður í landinu. Mei-whan gekk á hönd því, sem þær vildu og voru komnar til. Hún brosti og sagði fátt. Enginn mátti vita, að jafnvel nú þegar hafði óttinn og kvíð- inn setzt að í hjarta hennar. En kvinnurnar þrjár létu móðan mása meðan á athöfninni stóð. Einnig urðu unga stúlkurnar frjálslegri í framkomu á ný og tóku til máls. „Mannsefnið þitt, hann er hryllilega ljótur!“ sagði • ein þeirra stríðnislega. „Hann hefur svo hræðilegt ör á kinn- inni!“ sagði önnur. „En þú ert heppin þar,“ skaut sú þriðja inn í, „því þá verður ekki erfitt fyrir þté að halda honum. Það er engin hætta a því, að aðrar konur kæri sig um hann!“ Mei-whan hló að öllu þessu. En í hjarta sínu hugsaði hún sem svo: „Hvernig ge^a þær vitað þetta? Þær hafa heldur aldrej séð hann.“ Og enn einu sinni hvarflað* að henni sú hugsun, sem svo oft hafð1 leitað á hana fyrr: „Það er maðurina sjálfur, sem ég myndi elska. Andlit hans má mér standa á sama um.“ „Nú ertu reiðubúin. Sjáðu!“ sagði Ching Tai-tai og hélt speglinum fyrir frama11 hana. „Líttu nú á sjálfa þig, áður en bund- ið verður fyrir augun á þér!“ Mei-whan leit í spegilinn og roðnað1- Hún var raunverulega falleg. Jafnvel þral fyrir þykkt lag af brúðar-farða, var and- lit hennar fagurt. Hún vék speglinum rl HEIMILISBLA5iP

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.